Björk segir öllum þjálfurum upp Sindri Sverrisson skrifar 29. september 2026 07:26 Frá vorsýningu Bjarkar í ár. @fimleikafelagidbjork Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði neyddist í gærkvöld til þess að tilkynna öllum þjálfurum sínum, 18 ára og eldri, um uppsögn sem tekur gildi um áramótin.
Þetta kemur fram í bréfi sem sent var á foreldra og forráðamenn þeirra um það bil 1.100 iðkenda sem æfa fimleika hjá Björk. Þar segir að uppsagnirnar séu tilkomnar vegna fjárhagserfiðleika og tengist frammistöðu þjálfaranna ekki á nokkurn hátt. Félagið sé nú í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um rekstrar- og þjónustusamning sem vonir standa til að skili lausn svo starf félagsins geti haldið áfram með sama hætti og áður. Ráðningarsamningar þjálfaranna gilda næstu þrjá mánuði og munu æfingar að óbreyttu halda áfram samkvæmt stundatöflu þessa önn. Bréfið frá Björk má sjá hér að neðan. Kæru foreldrar og forráðamenn. Fimleikafélagið Björk hefur á undanförnum mánuðum unnið að endurskipulagningu rekstrar félagsins. Félagið er í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um rekstrar- og þjónustusamning og vinnur að lausn í samstarfi við bæinn. Á sama tíma þurfti að aðlaga reksturinn að núverandi forsendum. Því var í kvöld tilkynnt um uppsögn á ráðningarsamningum allra þjálfara félagsins 18 ára og eldri. Núverandi ráðningarsamningar gilda til og með 31. desember 2026. Þetta er rekstrarleg ákvörðun og tengist ekki frammistöðu þjálfaranna. Æfingar halda áfram samkvæmt stundatöflu. Vilji félagsins og markmið þessara aðgerða er að starf allra deilda og hópa haldist óbreytt. Unnið verður að fremsta megni að lágmarka rask og tryggja samfellu fyrir iðkendur. Frekari upplýsingar verða sendar hér í Abler eftir því sem málin skýrast. Ef breytingar varða hóp barnins ykkar verður haft samband sérstaklega. Spurningum má beina til skrifstofu félagsins. Með kveðju, Aðalstjórn Fimleikafélagsins Björk
Fimleikar Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sjá meira