Fótbolti

Gullboltinn af­hentur í kvöld

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ronaldinho, sem hlaut Gullboltann árið 2005, afhenti Ousmane Dembélé verðlaunin í fyrra.
Ronaldinho, sem hlaut Gullboltann árið 2005, afhenti Ousmane Dembélé verðlaunin í fyrra. EPA/Mohammed Badra

Gullboltinn, Ballon d‘Or, verður afhentur við hátíðlega athöfn í Lundúnum í kvöld. Harry Kane er talinn líklegastur í karlaflokki til að fá verðlaunin en Alexia Putellas kvennamegin.

Harry Kane gæti hlotið verðlaunin í fyrsta sinn en samkvæmt veðbönkum er hann talinn líklegastur til að hljóta nafnbótina, og það í höfuðborg heimalandsins. Hátíðin er haldin í sjötugasta sinn í kvöld og fer fram í Lundúnum til að heiðra Sir Stanley Matthews sem hlaut verðlaunin fyrstu allra fyrir sléttum 70 árum.

Franska stjarnan Kylian Mbappé er stutt á eftir Kane á líkindalistanum og þriðji er Spánverjinn Lamine Yamal, leikmaður Barcelona. Þeir eiga, líkt og Kane, eftir að vinna Gullbolta á sínum ferli.

Yamal var annar í valinu á síðasta ári þegar Ousmane Dembélé hlaut þau í fyrsta sinn og Mbappé varð þriðji árið 2023. Kane hefur aldrei verið á meðal þriggja efstu.

Aitana Bonmatí hefur hlotið Gullboltann síðustu þrjú ár í röð. Árin tvö á undan því fékk Alexia Putellas verðlaunin og allt bendir til að Putellas fái þau aftur í ár.Angel Martinez/Getty Images

Í kvennaflokki er Alexia Putellas talin langlíkegust af veðbönkum, þar sem 94 prósent líkur eru sagðar á því að hún verði valin. 4 prósent líkur eru að pólski markahrókurinn Ewa Pajor verði valin og 1 prósent að Aitana Bonmati hljóti þau. Líkur annarra eru lægri.

Putellas hlaut Gullboltann árin 2021 og 2022 og varð þá fyrsta konan til að hljóta verðlaunin tvö ár í röð. Hún skoraði 22 mörk í 45 leikjum á síðustu leiktíð með Barcelona þar sem liðið varð fjórfaldur meistari.

Hún sjokkeraði þá fótboltaheiminn er hún skipti frá Barcelona til að semja við London City Lionesses í sumar.

Fyrrverandi liðsfélagi Putellas, Aitana Bonmatí, hefur unnið Gullboltann í kvennaflokki síðustu þrjú ár í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×