Enski boltinn

City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Khaldoon Al Mubarak er stjórnarformaður Manchester City sem eyddi fúlgum fjár eftir að hafa fengið upplýsingar um dóminn á hendur félaginu.
Khaldoon Al Mubarak er stjórnarformaður Manchester City sem eyddi fúlgum fjár eftir að hafa fengið upplýsingar um dóminn á hendur félaginu. Vísir/Getty

Forráðamenn Manchester City voru upplýstir um það í júlí af óháðri nefnd ensku úrvalsdeildarinnar að félagið yrði dæmt sekt í 114 af 115 kæruliðum gegn félaginu vegna fjárhagsbrota.

ESPN hefur eftir heimildamönnum sínum að forráðamenn City hafi verið upplýstir um niðurstöðuna í júlí af nefndinni sem skipuð var til að dæma í málinu.

Dómur hefur þó ekki enn fallið í málinu og enska úrvalsdeildin neitað að tjá sig fyrr en sá dómur verður opinber. Lekar í fjölmiðla ollu því að umræða fór á fullt vegna málsins á föstudaginn var.

City neitar sök í málinu og loks þegar dómur verður opinber má gera ráð fyrir langvinnu áfrýjunarferli.

Önnur félög í ensku úrvalsdeildinni eru þá með til skoðunar einkamál á hendur City sökum árangurs sem þau telja að félagið hafi náð með ólögmætum hætti vegna brotanna. Sá árangur sé þá að kostnað annarra félaga sem hefðu ellegar endað ofar í deild eða öðrum keppnum.

Refsingar, hvort sem er íþróttalegs eðlis í gegnum stigafrádrátt eða sviptingu titla, eða fjárhagslegs eðlis með sektum, liggja ekki fyrir vegna brota City á reglunum.

Þrátt fyrir að hafa haft vitneskju um að dómurinn væri á leiðinni frá miðju sumri lagði City mikið púður í leikmannamarkaðinn í sumar og eyddi yfir 450 milljónum punda í nýja leikmenn.

Félagið sló félagsskiptamet til að kaupa Elliot Anderson frá Nottingham Forest á 116 milljónir punda og sló það met aftur undur lok gluggans þegar liðið keypti Enzo Fernández frá Chelsea á 125 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×