Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 14:37 Hörður segir mjúkum höndum farið um Arnar. Samsett/Vísir Fyrrverandi landsliðsmaðurinn og sparkspekingurinn Hörður Magnússon segir mjúkum höndum farið um landsliðsþjálfarann Arnar Gunnlaugsson og gerir kröfu um sigur er Ísland mætir Lúxemborg í kvöld.
Ísland mætir Lúxemborg í öðrum leik liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir að hafa gert vonbrigðajafntefli, 1-1, við Eistland á heimavelli í fyrsta leik á laugardag. Spjót hafa beinst að Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, eftir jafntefli helgarinnar og áhersla verið lögð á að sigrar Arnars í starfi séu aðeins þrír talsins. Hörður var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun og ræddi landsleik kvöldsins og vísaði meðal annars til blaðamannafundar gærdagsins í Lúxemborg. Á fundinum í gær taldi Arnar upp jákvæða hluti frá leiknum við Eistland, sem hafi ekki verið eins slæmur og umræðan segi til um. En að hann skilji að fólk nenni ekki að hlusta á hann telja þá hluti upp, skiljanlegt sé að fólk geri kröfu um úrslit. „Hann segir á blaðamannafundi í gær að það hafi verið margt jákvætt í leik liðsins [gegn Eistlandi], en að enginn nenni að hlusta á það. Eðlilega. Hann segir að liðið hafi hlaupið og við höfum átt geggjuð augnablik og ég veit ekki hvað. Að sjálfsögðu nennir enginn að tala um það, um hvað ertu að tala?“ sagði Hörður á Rás 2 í morgun. Þá nefndi Hörður einnig umrætt sigurhlutfall Arnars, sem er ekki hátt, enn sem komið er. „Það er auðvitað starf landsliðsþjálfarans að setja upp leikplan og fá það besta út úr leikmönnum. Það er vissulega bara einn leikur búinn og þrír leikir eftir af þessum glugga. En þetta er bara ekkert nýtt á hans ferli sem landsliðsþjálfari. Þetta eru þrír sigrar í sextán leikjum,“ segir Hörður og segir einnig: „Hann er auðvitað vinsæll og opinn og það hjálpar honum mikið í umræðunni en það er farið svolítið mjúkum höndum um hann. annað en þegar Arnar Þór Viðarsson var til dæmis með landsliðið og álitsgjafar hökkuðu hann í spað og vildu reka hann í beinni útsendingu,“ segir Hörður og vísar þar til nafna núverandi landsliðsþjálfara. Arnar Þór stýrði Íslandi aðeins til sex sigra í 32 leikjum sem landsliðsþjálfari. „Við þurfum að gera kröfur, við erum með hörkuöfluga leikmenn og það þarf að fá það besta út úr þessum leikmönnum. Árangurinn hingað til er bara mjög svipaður og þegar Arnar Þór Viðarsson var með liðið. Betur má ef duga skal,“ segir Hörður. Hann kveðst þó hafa trú á því að íslenska liðið sýni sitt rétt andlit í kvöld og spáir því 2-0 útisigri. Ísland mætir Lúxemborg klukkan 18:45 í kvöld og leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport í opinni dagskrá. Bein útsending hefst klukkan 18:15.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið „Var líklegur í að hoppa í ána og segja að þetta sé búið“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Sjá meira