Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Lovísa Arnardóttir skrifar 30. september 2026 07:49 Tanja og Jökull hönnuðu slaufuna í sameiningu. Krabbameinsfélagið Parið Tanja Levý og Jökull Jónsson eru hönnuðir Bleiku slaufunnar í ár. Árleg opnunarhátíð Bleiku slaufunnar fer fram í kvöld og hefst samhliða því sala á slaufunni.
Tanja og Jökull þekkja af eigin raun hvernig það er þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. Tanja greindist með brjóstakrabbamein í október í fyrra, einungis 36 ára að aldri, en hún var þá með ársgamalt barn þeirra á brjósti. Í tilkynningu er haft eftir Tönju að átak Bleiku slaufunnar hafi verið nýfarið af stað í fyrra þegar hún fann hnút í brjósti sínu. „Slaufan er innblásin af krabbameinsvegferðinni og vísar í tímalínu bleika ársins okkar,“ segir Tanja. „Þetta er úrvinnsla úr tilfinningum okkar og því sem við vorum að ganga í gegnum og það var heilandi ferli að fá tækifæri til að setja þær tilfinningar í hönnunina, það hjálpaði okkur.“ Tanja og Jökull sóttu innblástur í japönsku aðferðina Kintsugi. „Þá eru brotnir hlutir límdir saman með gulli til að heiðra brotin, ekki til að fela þau heldur sýna þau. Brotin segja sögu hlutarins og hann er talinn ekkert síður fallegur þótt brotin sjáist,“ segir Jökull. Bleika slaufan er skærbleik í ár. Krabbameinsfélagið Áberandi litur sérvalinn Fremri borði slaufunnar er þannig spegilsléttur og táknar tímabilið fyrir greininguna. Aftari borðinn er hrjúfur og stendur fyrir krabbameinsmeðferðina. Sprungan er tákn um áskoranir og ör á líkama og sál sem fylgja ferlinu öllu. Sprunguna prýðir bleikur steinn sem táknar styrk, von og samstöðu. Þá er litur slaufunnar sérvalinn til að vera áberandi. „Tanja ákvað í lyfjameðferðinni að klæða sig upp og bera höfuðið hátt og vera sýnileg og við vildum hafa slaufuna þannig líka,“ segir Jökull. „Hún er skærbleik og vel sýnileg og maður getur verið stoltur af því að bera hana.“ Í tilkynningu kemur fram að á hverju ári greinist að meðaltali 1.038 konur með krabbamein og standi þá frammi fyrir einni stærstu áskorun lífs síns. Framfarir í krabbameinsmeðferð séu sem betur fer stöðugar og sífellt fleiri læknist eða lifa lengi með sjúkdóminn. Í árslok 2025 hafi verið 10.809 konur á lífi sem höfðu fengið krabbamein. Konur eru hvattar til að vera vakandi fyrir einkennum sem bent geta til krabbameins eins og óútskýrðu þyngdartapi, sárum sem ekki gróa, breytingum á fæðingarblettum, hnútum, óútskýrðri þreytu, óvenjulegum blæðingum og fleiru. „Flest einkenni reynast vera af völdum annars en krabbameins, en því fyrr sem krabbamein greinist, því betri líkur eru á lækningu og léttari meðferð,“ segir í tilkynningu. Sparislaufan í ár er hálsmen. Krabbameinsfélagið Líkt og fyrri ár var framleidd Sparislaufa, gullhúðað koparhálsmen í samlitri keðju með þremur dökkbleikum Swarovski-steinum. Sparislaufan kemur í takmörkuðu upplagi og hefur oft selst upp á fyrstu dögum átaksins og því er gott að tryggja sér eintak í tíma. Heiður að fá að hanna slaufuna Tanja segir dýrmætt að hafa getað leitað til Krabbameinsfélagsins eftir greininguna. „Það var í raun eitt fyrsta símtalið sem ég átti eftir að hafa fengið greininguna og ég var gripin svo vel þar og fjölskyldan mín líka. Það er ótrúlega mikill heiður fyrir okkur að taka þátt í þessu og hafa fengið að hanna þetta samstöðutákn sem fjármagnar rannsóknir, eflir forvarnir, veitir ókeypis stuðning og er áminning um hvað það er mikilvægt að bregðast hratt við.“ Í tilkynningu um viðburðinn kemur fram að Halla Tómasdóttir forseti Íslands setji viðburðinn og eftir það verði frumsýnd auglýsing Bleiku slaufunnar. Auk þess koma fram Páll Óskar, Ragnhildur Gísladóttir og Halldór Gunnar, Sigríður Thorlacius og Valdimar. Ólafía Hrönn stýrir veislunni. Bleika slaufan verður í sölu frá 30. september til 24. október í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins og hjá hátt í 400 söluaðilum um land allt. Sparislaufan fæst í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins, auk þess sem hún er til sölu í Mebu skartgripaverslun í Kringlunni og Smáralind. Nánari upplýsingar má nálgast á bleikaslaufan.is
Krabbamein Heilbrigðismál Félagasamtök Tíska og hönnun Tengdar fréttir „Klæðaburður er í raun tungumál, tjáning og samskiptakerfi án orða“ Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir er búninga-, tísku-, textíl- og leikmyndahönnuður sem hefur gaman af litagleði og elskar fjölbreytileikann sem tískan býr yfir. Hún lýsir stílnum sínum sem mjög flæðandi en rauði þráðurinn í klæðaburði hjá henni hefur alltaf verið dass af húmor. Tanja er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 3. júlí 2022 07:01 Hlaupa Bleiku slaufuna í sólarhring „Þetta verður í 24 tíma því að krabbameinið sefur aldrei, hvort sem það er nótt eða dagur. Það er fólk búið að skrá sig á alla tímanna í nótt. Þetta gengur frábærlega.“ 12. október 2024 19:41 Bleikasta partý ársins í Höfuðstöðinni Eitt bleikasta partý ársins fór fram í Höfuðstöðinni í Elliðarárdal þar sem útgáfa Bleiku slaufunnar var fagnað. Hönnuðir slaufunnar í ár eru gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir. 11. október 2023 07:00 Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira
„Klæðaburður er í raun tungumál, tjáning og samskiptakerfi án orða“ Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir er búninga-, tísku-, textíl- og leikmyndahönnuður sem hefur gaman af litagleði og elskar fjölbreytileikann sem tískan býr yfir. Hún lýsir stílnum sínum sem mjög flæðandi en rauði þráðurinn í klæðaburði hjá henni hefur alltaf verið dass af húmor. Tanja er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 3. júlí 2022 07:01
Hlaupa Bleiku slaufuna í sólarhring „Þetta verður í 24 tíma því að krabbameinið sefur aldrei, hvort sem það er nótt eða dagur. Það er fólk búið að skrá sig á alla tímanna í nótt. Þetta gengur frábærlega.“ 12. október 2024 19:41
Bleikasta partý ársins í Höfuðstöðinni Eitt bleikasta partý ársins fór fram í Höfuðstöðinni í Elliðarárdal þar sem útgáfa Bleiku slaufunnar var fagnað. Hönnuðir slaufunnar í ár eru gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir. 11. október 2023 07:00