Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar 1. október 2026 11:47 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra sagði á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 26. september að úrskurðum alþjóðadómstóla bæri að hlíta, „og ekki aðeins þegar stjórnvöldum í einstökum ríkjum líkar niðurstaðan“. Hún talaði um siðferðislega hugleysingja og uppskar lof fyrir. En hugrekki í ræðustól dugar skammt ef því er ekki fylgt eftir heima. Nú reynir á. Þann 8. september lýsti Ísland því yfir, ásamt ellefu öðrum ríkjum, að það hygðist takmarka vöruviðskipti við landtökubyggðir Ísraels, Það er skref í rétta átt og því ber að fagna. En skrefið er stutt. Bannið nær í rauninni aðeins yfir döðlur, vín og snyrtivörur, sem vega lítið í viðskiptum okkar. Alþjóðadómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í júlí 2024 að hernám Ísraels í Palestínu er ólöglegt, að Ísrael beri að binda enda á ólöglega viðveru sína, hætta tafarlaust allri nýrri landtöku, flytja alla landtökumenn, ríflega 700.000 talsins, á brott og að ríki skulu koma í veg fyrir viðskipta- og fjárfestingartengsl sem stuðla að því að viðhalda hernáminu.Á sama tíma liggur fyrir Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna uppfærð skýrsla, dagsett 25. september. Þar eru 214 fyrirtæki skráð vegna starfsemi sem tengist landtökubyggðunum. Þar er enginn greinarmunur gerður á döðlum eða gistinóttum. Á listanum eru Airbnb, Booking.com, Expedia og Tripadvisor sem öll hagnast á viðskiptum við landtökubyggðirnar. Þetta eru sömu fyrirtæki og íslensk ferðaþjónusta reiðir sig töluvert á. Alþjóðadómstóllinn kveður á um hvað ríkjum ber að gera og er almennt litið svo á meðal lögfræðinga í kjölfar álitsins að fyrirtæki verði að draga sig út eða hætta starfsemi sem þjónustar, fjármagnar eða byggir upp innviði á hernumdu svæðunum, vilji þau komast hjá hlutdeild í fyrirkomulagi sem viðurkennt er á alþjóðavettvangi að sé ólöglegt. Skýrslan segir: ríki skulu virða skyldur sínar, einnig þegar kemur að reglum um fyrirtæki sem lúta lögsögu þeirra. Ísland situr í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, sama ráðið og óskaði eftir þessum gagnagrunni um fyrirtæki sem brjóta alþjóðalög. Okkur ber því siðferðisleg skylda að taka á þessu máli heima fyrir. Ég geri mér grein fyrir að það er ekki hægt að banna þessi fyrirtæki á Íslandi á einni nóttu en ætlum við að fylgja alþjóðalögum, eða aðeins þeim hluta sem kostar okkur ekkert? Nú verður utanríkisráðherra að fylgja eftir með hugrétti og sýna í verki að við tökum alþjóðalög alvarlega. Ef okkur er alvara þá þurfum við að ganga lengra og krefjast þess að fyrirtækin láti af stuðningi við landtökubyggðirnar ellegar eiga von á banni á Íslandi. Annars höldum við einfaldlega áfram að grafa undan þeim alþjóðastofnunum sem ráðherrann undirstrikaði í ræðu sinni að við, sem smáríki þyrftum að vernda. Höfundur er sérfræðingur um þróunar- og öryggismál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Helen Ólafsdóttir Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar