Tíu ára raunvextir orðnir nær þeir sömu og í Bandaríkjunum
Raunvaxtamunur Íslands gagnvart Bandaríkjunum hefur minnkað hratt á undanförnum mánuðum og er nú svo komið að tíu ára raunvextir eru nánast þeir sömu í löndunum tveimur. Þróunin, sem skýrist bæði af þrálátri verðbólgu hér heima og hækkandi langtímavöxtum erlendis, getur dregið úr hlutfallslegu aðdráttarafli íslenskra eigna þrátt fyrir háa stýrivexti.
Tengdar fréttir
Stöðugleiki í vaxtaþróun langra ríkisbréfa merki um „seiglu“ íslenska markaðarins
Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá sumum ríkjum.
Mikil gengisstyrking krónunnar knýr Seðlabankann í sín fyrstu inngrip í eitt ár
Eftir mikla gengisstyrkingu krónunnar að undanförnu þá sá Seðlabankinn ástæða til að stíga inn á millibankamarkaðinn í dag með sérstökum inngripum og keypti gjaldeyri til að vega á móti gengishækkuninni. Þetta eru fyrstu gjaldeyrisinngrip bankans í ríflega eitt ár en raungengi krónunnar er núna í hæstu hæðum.
Erlend staða íslenska þjóðarbúsins ein sú besta meðal ríkja í Evrópu
Aðeins fáein Evrópuríki geta státað sig af því að vera með sterkari erlenda stöðu í samanburði við Ísland en hrein eignastaða þjóðarbúsins í hlutfalli við landsframleiðslu hefur núna haldist yfir 40 prósent frá ársbyrjun 2024. Áratugur er liðin síðan Ísland náði þeim áfanga að vera hreinn útflytjandi fjármagns og hefur það meðal annars átt ríkan þátt í meiri stöðugleika íslensku krónunnar.