Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2026 07:33 Heimir Hallgrímsson og hans menn eru með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina í Þjóðadeildinni, þremur stigum á eftir Austurríki. Getty/Stephen McCarthy Heimir Hallgrímsson virtist ekki beint sáttur við fyrstu spurningu Tony O‘Donoghue hjá RTÉ, ríkismiðli Írlands, í beinni útsendingu eftir að hafa stýrt Írum til 2-2 jafnteflis við Austurríki í Dublin í Þjóðadeildinni í fótbolta í gærkvöld.
Troy Parrott kom Írum í 2-0 í fyrri hálfleik með stórkostlegu einstaklingsframtaki og marki úr víti en Austurríkismenn jöfnuðu með mörkum á 71. og 77. mínútu. O'Donoghue hóf viðtalið á að segja að Heimir mætti vera ánægður með fyrri hálfleikinn og draumamark Parrotts en svo hefði liðið AFTUR misst niður tveggja marka forskot. „Aftur?“ spurði Heimir, greinilega að velta fyrir sér af hverju spyrillinn orðaði hlutina svona. „Allt í lagi…“ hélt Heimir áfram og tjáði sig svo um frammistöðu írska liðsins, eins og sjá má hér að neðan. A conflicted Heimir Hallgrímsson speaks to Tony O'Donoghue after Ireland's 2-2 draw with Austria #rtesport 📺Watch live on RTÉ2 and RTÉ Player pic.twitter.com/Rvp4UhbKZJ— RTÉ Sport (@RTEsport) October 1, 2026 Heimir tók við írska landsliðinu sumarið 2024 og síðan þá hefur liðið aðeins einu sinni misst niður tveggja marka forskot. Það var í HM-umspilinu við Tékka í mars og mögulega var sá leikur O‘Donoghue svona hugleikinn. „Auðvitað var ég ánægður með að vera 2-0 yfir í hálfleik. Við vissum, og ég sagði þér það fyrir leik, að þetta lið [Austurríki] væri mjög orkumikið og við vissum að við yrðum að gera einhverjar breytingar og skiptingar. Mér fannst við missa skipulagið líklega vegna þreytu og þá fara menn að gera mistök. Það er eitthvað sem við erum auðvitað ekki ánægðir með,“ sagði Heimir og benti á að öll umræðan varðandi leiki Írlands við Ísrael, sem margir Írar eru ósáttir við að fari fram, hefði ekki hjálpað til: „Fyrri hálfleikur var góður, skipulagið gott, og við vitum að við getum þetta. En ég bjóst eiginlega allt eins við því að við yrðum bensínlausir á einhverjum tímapunkti. Kannski ekki svona fljótt samt. Þessi vika hefur ekki bara verið líkamlega erfið heldur andlega líka og það tekur mikla orku frá mönnum líka,“ sagði Heimir.
Þjóðadeild karla í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira