Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2026 09:30 Rasmus Höjlund ýtti létt við Jorge Jesus eftir að þeir tókust í hendur í leikslok. Skjáskot/Viaplay Danski framherjinn Rasmus Höjlund fagnaði marki sínu gegn Portúgal í gær að hætti Cristiano Ronaldo og ýtti svo við þjálfara Portúgals, Jorge Jesus, eftir leik og gaf honum illt augnaráð.
Ronaldo yfirgaf portúgalska landsliðshópinn daginn fyrir leik og gæti hafa spilað sinn síðasta landsleik. Hann var afar ósáttur með þá meðferð sem hann fékk í Osló á sunnudag þegar hann spilaði ekki mínútu fyrir portúgalska liðið í 2-1 sigri. Ronaldo er stærsta fyrirmynd Höjlund og Daninn vildi heiðra hetjuna sína með „siu“-fagni sínu eftir að hafa jafnað metin í 2-2 á Parken í gær, í leik sem lauk með 4-2 sigri Portúgals. Meira hefur þó verið gert úr samskiptum Höjlund og Jesus eftir leik því Höjlund ýtti þá létt í bringu Jesus sem brást við með brosi. Daninn brosti hins vegar alls ekki. Auðvelt væri að geta sér þess til að Höjlund hafi viljað sýna óánægju sína með þá meðferð sem Ronaldo hefur fengið hjá þjálfaranum en hvorugur hefur tjáð sig um atvikið. Fagnið hjá Höjlund og samskipti hans og Jesus má sjá hér að neðan. Klippa: Höjlund ýtti við Jesus Þó að Höjlund fengi engar spurningar um af hverju hann ýtti létt við Jesus var hann spurður út í ástæður þess að hann fagnaði að hætti Ronaldo: „Þetta er bara virðingarvottur til manns sem er hugsanlega búinn með landsliðsferilinn – eftir það sem gerðist. Já, þannig að ég vildi bara enn og aftur heiðra hann. Þetta hefur ekkert með virðingarleysi að gera. Hann er stóra fyrirmyndin mín,“ sagði Höjlund.
Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Sjá meira