Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2026 13:43 Ísak Bergmann Jóhannesson segir ekki nóg að íslenska landsliðið spili vel, það verði að sýna þá hörku sem til þarf til að vinna leiki. Skjáskot/Sýn Sport Ísak Bergmann Jóhannesson segir að yngri leikmenn íslenska landsliðsins verði að læra af Gylfa Þór Sigurðssyni og Aroni Einari Gunnarssyni og þora að vera „óþolandi“ við mótherjana innan vallar.
Stefán Árni Pálsson og Henry Birgir Gunnarsson ræddu við Ísak eftir blaðamannafund KSÍ í dag, fyrir leikinn við Búlgaríu í Þjóðadeildinni á morgun á Laugardalsvelli. Stefán benti á að í 3-0 sigrinum gegn Lúxemborg ytra á þriðjudaginn hefði hann heyrt Ísak öskra ítrekað í hvert sinn sem hann vann boltann og fagna framan í mótherjana sem eflaust hefði fundist það óþolandi. „Ég þekki það sjálfur að þegar hinir leikmennirnir gera þetta þá er það gjörsamlega óþolandi. Við þurfum að læra af Aroni og Gylfa. Þeir voru óþolandi inni á vellinum. Við megum ekki vera bara vel spilandi lið en ekki með hörkuna í okkur til að vinna leikina. Þetta var ekki besti leikurinn með boltann hjá okkur gegn Lúxemborg en við gerðum þetta gríðarlega vel og það var gríðarlega mikilvægt að halda markinu hreinu,“ sagði Ísak en hluta viðtalsins við hann má sjá hér að neðan. Ísak sagði það ekki gott að dæma sjálfan sig sem leikmann en viðurkenndi að líklega hefði hann stafað frá sér meiri orku en stundum áður í leiknum í Lúxemborg: „Kannski hjálpar það að vera með Gylfa Sig við hliðina á sér sem er 37 ára en er samt að gera allt fyrir landsliðið. Maður finnur orkuna frá honum við hliðina á sér og kannski gaf það mér orku í þessum leik Við vorum klárlega með eitthvað innan í okkur, eins og Arnar [Gunnlaugsson þjálfari] sagði um daginn. Við vorum reiðir eftir frammistöðuna hér á Laugardalsvelli [í 1-1 jafnteflinu við Eistland]. Ég veit ekki hvort ég er svona leikmaður en ég reyni bara að hjálpa liðinu hvort sem það er með mörkum, stoðsendingum eða með því að berjast og hlaupa fyrir liðið,“ sagði Ísak. Blaðamannafundinn sem Ísak og Arnar Gunnlaugsson sátu í dag og viðtalið við Ísak eftir fund má sjá í heild hér að neðan. Leikur Íslands og Búlgaríu hefst klukkan 16 á morgun á Laugardalsvelli og er miðasala í fullum gangi. Bein útsending hefst á Sýn Sport klukkan 15:20.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira