Fótbolti

Svein­dís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu

Sindri Sverrisson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir er lykilmaður hjá Angel City.
Sveindís Jane Jónsdóttir er lykilmaður hjá Angel City. Getty/Griffin C. Hooper

Sveindís Jane Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Angel City náðu með dramatískum hætti í stig gegn toppliði Gotham á útivelli í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta og halda þar með áfram langri hrinu án taps.

Sveindís átti flottan leik í dag en tókst þó ekki að skora að þessu sinni og raunar voru 90 mínútur liðnar og staðan 1-0 fyrir Gotham eftir mark frá Jaedyn Shaw, þegar Angel City fann loksins leiðina í markið.

Það var varamaðurinn Taylor Marie Suarez sem jafnaði metin í uppbótartíma og þær Sveindís og liðsfélagar þeirra fögnuðu skiljanlega vel.

Angel City hefur þar með enn ekki tapað síðan 27. ágúst og náð sjö leikjum í röð án taps, unnið fimm þeirra en gert tvö jafntefli.

Liðið er komið upp í 6. sæti með 43 stig en Gotham er með 55 stig á toppnum, fjórum stigum á undan San Diego Wave, þegar þrjár umferðir eru eftir. Stigið í dag hjálpar Angel City í átt að úrslitakeppninni en þangað komast átta bestu liðin.

Sveindís heldur nú í langt ferðalag því hún er í íslenska landsliðinu sem spilar í Króatíu á föstudaginn í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM. Seinni leikurinn við Króata er svo 13. október á Laugardalsvelli. Sigurliðið spilar við Portúgal eða Norður-Írland í einvígi um sæti á HM í Brasilíu í næsta sumar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×