Lífið

Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Dorrit og Ólafur eru skilin eftir að hafa verið gift í 23 ár. Dorrit ræddi hjónabandið og skilnaðinn í einlægu viðtali við Mörtu Maríu.
Dorrit og Ólafur eru skilin eftir að hafa verið gift í 23 ár. Dorrit ræddi hjónabandið og skilnaðinn í einlægu viðtali við Mörtu Maríu. Listasafn Reykjavíkur

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segir líf sitt vera á hvolfi eftir skilnað hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Upphafið að endalokum hjónabandsins rekur hún til 7. október 2023 þegar Hamas gerðu árás á Ísrael. Þá hafi orðið ljóst að hún og Ólafur gætu ekki veitt hvoru öðru þann stuðning sem hinn þurfti á að halda. Hún syrgi lífið sem þau áttu saman.

Dorrit var gestur Mörtu Maríu Winkel í hlaðvarpinu Marta María býður heim þar sem þær fóru um víðan völl og ræddu um æsku Dorritar, samband hennar og Ólafs Ragnars og skilnaðinn sem þau gengu í gegnum nýverið.

Dorrit sagðist í hlaðvarpinu aldrei hafa litið á sig sem forsetafrú, hún hefði ekki bara verið eiginkona hans heldur verið með sitt eigið líf og fyrirtæki. Hún hefði samt sem áður lagt áherslu á að hjálpa Íslandi og Íslendingum á meðan hún var gift Ólafi, ekki síst með fjölbreyttum tengslum sínum.

„Hann hafi viljað aðra hluti út úr lífinu en ég“

Dorrit ræddi hjónaband sitt við Ólaf í hlaðvarpinu, fyrstu kynni þeirra og svo hvernig ástin kviknaði á milli þeirra í Aspen. Þá lýsti hún því hvernig hjónaband þeirra komst á endastöð sem hún rekur að einhverju leyti til árásar Hamas á Ísrael þann 7. október 2023 og stríðsins sem fylgdi í kjölfarið. Atburðurinn hafi verið henni mikið áfall.

„Ég kenndi ísraelska forsætisráðherranum um þennan harmleik, á báðum hliðum. Líf skipta máli, sama hvers líf það er,“ sagði Dorrit um Benjamín Netanyahu.

„Flestallt fólkið á Gasa er mjög gott fólk. Þetta olli svo miklum harmleik á báðum hliðum. Ég gat ekki sætt mig við að Ísrael væri rekið af svona, ég get ekki notað orðin sem ég vil nota, tegund af ríkisstjórn,“ bætti hún við.

„Ég var mjög geðvond, mjög skapstygg, í mjög vondu skapi, mjög óþolinmóð,“ segir Dorrit og bætir við að hún hafi þurft mikinn stuðning frá Ólafi. Hann hefði aftur á móti þurft eitthvað annað frá henni.

„Hann vildi bara, sem er eðlilegt, að ég væri skilningsrík, góð og styðjandi og þetta var bara ekki tíminn þar sem ég gat gefið honum það. Ég bjóst við því frá honum en það var ekki eitthvað sem hann gat gefið mér,“ sagði Dorrit.

Það hafi verið ljóst að þau vildu ekki sömu hlutina.

„Ég held að hann hafi viljað aðra hluti út úr lífinu en ég.“

Búi enn í sama húsi þegar hún er á Íslandi

„Ég veit það ekki. Líf mitt er algjörlega á hvolfi,“ sagði Dorrit þegar hún varð spurð hvernig líf hennar væri núna eftir skilnað hennar og Ólafs.

Hún finni fyrir mikilli sorg og sakni þess lífs sem hún og Ólafur Ragnar áttu saman. Heimurinn hennar hefði verið fullkominn og lýsti hún því hvernig líf hennar hefði verið á Íslandi. Þrátt fyrir sambandsslitin talaði hún vel um árin þeirra saman.

„Við áttum svo margar frábærar stundir,“ sagði Dorrit og nefndi sérstaklega komu hundanna þeirra tveggja, Sáms og Samsonar, fæðingu barnabarna Ólafs og ferðir þeirra um Ísland.

„Ég þarf að finna mitt eigið heimili,“ sagði Dorrit aðspurð um heimili sitt á Íslandi. Þangað til hún finnur það fái hún að búa á sama stað og Ólafur þegar hún er á Íslandi. Húsið sé stórt, Ólafur oft í burtu og hún þurfi að vera hjá Samsoni sínum til að halda geðheilsunni. Ólafur sýni því skilning.

Dorrit ræddi margt fleira í hlaðvarpinu sem er hægt að hlusta á á helstu streymisveitum.


Tengdar fréttir

Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar

Fregnir bárust í vikunni af skilnaði Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorritar Moussaieff og rifjaðist þá upp þegar Davíð heitinn Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, gerði athugasemdir við hjónavígslu þeirra í bréfi sumarið 2003. Davíð taldi ágalla á hjónabandinu því gögn vantaði um skilnað Dorritar við fyrrverandi eiginmann hennar. Lögmaður Ólafs taldi Davíð vilja gera hjónin að athlægi og sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson sagði Davíð vega að heiðri Dorritar. Lektor í stjórnsýslurétti taldi Davíð ekki endilega hafa farið út fyrir verksvið sitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.