Fótbolti

Arnar um Aron Einar: „Ekkert per­sónu­legt“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar Gunnlaugsson vonar að Aron Einar sé ósáttur við að hafa farið af velli.
Arnar Gunnlaugsson vonar að Aron Einar sé ósáttur við að hafa farið af velli. Getty/Alex Nicodim

„Ég ætla rétt að vona það,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, aðspurður á blaðamannafundi í dag hvort Aron Einar Gunnarsson hafi verið ósáttur að vera tekinn af velli í hálfleik í 3-0 sigri á Búlgaríu um helgina.

Aron Einar byrjaði í miðri vörn Íslands í 3-0 sigri laugardagsins en spilaði þó aðeins 45 mínútur og kippt af velli í leikhléi. Landsliðsþjálfarinn var spurður á blaðamannafundi í Tallinn í dag hvort fyrrverandi landsliðsfyrirliðinn hafi verið ósáttur við að fara af velli.

Klippa: Blaðamannafundur Íslands í Tallin

„Það er enginn leikmaður ánægður með það og Arnór (Sigurðsson, sem einnig fór af velli í hálfleik) ekki heldur. Hvort sem þeir hafi beðið um skýringar eða ekki á því skiptir engu máli. Ég tek þessar ákvarðanir með hag liðsins í huga og að reyna að vinna leiki,“

„Ég taldi þetta það besta í stöðunni í hálfleik og svo getur eitthvað annað komið upp í hálfleik á morgun. Þetta er ekkert persónulegt gagnvart þessum strákum. Við erum að reyna að vinna leiki hérna,“ segir Arnar.

Ísland mætir Eistlandi ytra annað kvöld klukkan 18:45. Leikurinn verður sýndur beint og í opinni dagskrá á Sýn Sport.

Sjá má blaðamannafund dagsins þar sem Arnar sat fyrir svörum ásamt Guðlaugi Victori Pálssyni, í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×