Digger grefur sína eigin gröf Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. október 2026 07:05 Tom Cruise leikur olíujöfurinn Digger Rockwell sem er ógnvekjandi og sjarmerandi skaðvaldur sem steypir heiminum í glötun. Stórmyndin Digger tæklar ýmis áleitin málefni samtímans: yfirstandandi hamfarahlýnun, hlutverk listar fyrir samfélagið og andvaraleysi nútímamannsins sem deyfir sig með afþreyingu meðan hann flýtur sofandi að feigðarósi. Þó að kafað sé ofan í fjölmörg mál er of grunnt farið og tapast sagan á endanum í frásagnarföndri.
Digger er nýjasta kvikmynd mexíkóska leikstjórans Alejandro González Iñárritu sem hefur áður gert kvikmyndir á borð við Revenant (2015), Birdman (2014), Babel (2006) og Amores Perros (2000). Handritið skrifar hann sjálfur ásamt Alexander Dinelaris, Nicolási Giacobone og Sabinu Berman. Leikhópur myndarinnar er fjölmennur með stórstjörnuna Tom Cruise fremsta í flokki en auk hans fara John Goodman, Riz Ahmed, Sandra Hüller og Jesse Plemons með burðarhlutverk í myndinni. Taumlaus olíugröftur olíuauðjöfursins Diggers Rockwell (Cruise) verður þess valdur að borgarísjaki losnar frá Grænlandi og stefnir á Evrópu með hræðilegum afleiðingum. Digger þarf í samvinnu við Bandaríkjaforsetann Compson (Goodman) að reyna að afstýra þessum hamförum. Hins vegar er ekki allt sem sýnist hvað Digger varðar og heiminn sem hann hrærist í. Digger var frumsýnd hérlendis 1. október síðastliðinn og er sýnd í Sambíóunum, Smárabíói og Laugarásbíói. Ofleikur, skopstælingar og íburðarmikil sviðsetning Auðjöfurinn Digger Rockwell er af olíuættum og býr í risavaxinni höll sinni með kettinum Maggie sem er orðin 38 ára gömul og svo hrum að hún er þjökuð af öllum mögulegum kvillum. Eftir að Digger hunsar varúðarorð öryggissérfræðinga vegna olíuboranna á Grænlandi verður risavaxin sprenging þess valdandi að stærðarinnar borgarísjaki losnar og stefnir hraðbyri til Evrópu. Digger kallar á sinn fund Dr. Ganesh (Ahmed) sem er yfirmaður öryggismála fyrirtækisins, Bandaríkjaforsetann Compson (Goodman) sem er þjakaður af krabbameini í endaþarmi og allt hans ráðherralið. Þeir deila um næstu skref, hvort sprengja eigi borgarísjakann í tætlur eða láta hann óáreittan og sjá hvar hann endar, en eiga erfitt með að taka ákvörðun, líkt og í Dr. Strangelove sextíu árum fyrr. Hálfsystir Diggers, Emma (Hüller), skýtur nokkrum sinnum inn til að skammast í bróður sínum en hún rekur grænt og sjálfbært dótturfyrirtæki hans. Þegar raunveruleikinn verður fáránlegur er erfitt að hæðast að honum án þessa að enda í skopstælingu. Persónurnar eru ýktar skopstælingar af sígildum steríótýpum. Rockwell er samsuða af sígildum suðurríkjakörlum, Bond-illmenninu Ernst Blofeld og öðrum frægum Cruise-karakter, Les Grossman úr Tropic Thunder. Cruise nýtur þess að fara alla leið sem fráhrindandi en dálítið sjarmerandi illmennið. Compson forseti er seníll, barbarískur og vitlaus líkt og einhver útþynnt blanda af Trump og Biden meðan Dr. Ganesh er hinn týpíski taugaveiklaði vísindamaður. Fyrir utan yfirgengilegan ofleikinn er sviðsetningin leikhúsleg, leikmyndin íburðarmikil og litapallettan eins og blanda af grálituðum myndum Roys Andersson og pastel-pallettu Wes Anderson. Kvikmyndatökumaðurinn Emmanuel Lubezki rammar karakterana skemmtilega inn með víðum skotum sem gefa myndinni ákveðinn óraunveruleikablæ. Hljóðhönnunin er kraftmikil með háværum hurðaskellum, dinkum og tónlist Cosmo Sheldrake sem blandar saman dýrahljóðum við treblásturshljóðfæri, trommuslátt, sinþa og lúðrasveitarspil. Allt sem á undan hefur komið kemur fram í markaðsherferð kvikmyndarinnar en í aðdraganda hennar hafa margir velt því fyrir sér hvort Digger sé dulin söngleikjamynd, falin undir yfirskyni hamfaramyndar um megalómaníak með messíasarkomplex. Digger er vissulega ekki söngleikjamynd en það er samt dálítið sem hangir á spýtunni. Hér neyðist ég til að greina frá mikilvægu spillefni sem lesendur ættu að varast vilji þeir sjá Digger. Til að forðast það er best að skauta yfir næstu kafla og fara beint í niðurstöðurnar. Tom Cruise kjamsar á ýktum efniviðnum. Sá Digger sem við sjáum í myndinni er nefnilega skáldaður karakter leikinn af leikaranum Curtis Markson (Cruise), sem byggir á Digger Rockwell, sögulegri persónu, og kemur fyrir í leikritinu Fossil Fuels, költklassík sem er verið að sviðsetja í kvikmyndinni. Tálsýnin er rofin þegar sviðsmyndin bilar og leikstjórinn kemur á svið. Iñárritu beitir framandgervingu, sem þýska leikskáldið Bertolt Brecht varð frægur fyrir, til að sýna þeim að þeir séu að horfa á eitthvað sem er búið að framleiða fyrir þá. Brecht beitti aðferðinni til að koma í veg fyrir að áhorfendur týndu sér í leikritum og yrðu meðvitaðir um að þeir séu enn í raunheimum. Ekki nóg með að þetta sé leikrit heldur kemur í ljós að aðalleikarinn Curtis er óánægður með sviðsetninguna, finnst hún ýkt, ótrúverðug og ósönn því sem gerðist. John Goodman er yfirdrifinn og yfirgengilegur sem Compson forseti. Þar með breytist sýn áhorfenda á fyrsta þriðjunginn, ýkjurnar og fáránleikinn eru augljóslega markviss. Iñárritu virðist vera að hæðast að skopi sem hefur verið ríkjandi undanfarin ár í kvikmyndum á borð við Don't Look Up (2021) og Mickey 17 (2025) og háðsádeiluþáttum á borð við SNL þar sem frjálslyndir kratar beina spjótum sínum að Trump, Elon Musk og öðrum þeirra líkum. Fáránleikinn er með vilja gerður og grínið, sem samanstendur af miklum neðanbeltishúmor, er markvisst yfirdrifið, jafnvel ófyndið. Myndin er uppfull af gríni, hreinum og beinum bröndurum, sjónrænu gríni og farsakenndum yfirlýsingum, en málið er að sárafátt fær áhorfendur til að hlæja - allavega ekki miðað við tvær bíóferðir mínar. Hundurinn liggur að einhverju leyti þar grafinn. Utan leiksviðsins kynnast áhorfendur aðalleikaranum Curtis lítillega og fá smjörþef af heimi kvikmyndarinnar sem gerist einhverja áratugi fram í tímann. Leikhúsið glímir við vatnsskort, reglulegt rafmagnsleysi og í fréttunum berast fregnir af fellibyl. Hliðarflétta myndarinnar birtist í þessum senum og snýr að dóttur leikarans sem lendir í háska vegna hörmunganna. Skáldskapur, lygar og frásagnarbrellur Áhorfendum er dembt aftur inn í leikritið og sagan heldur áfram með tilheyrandi hörmungum fyrir Jarðarbúa. Á endanum er Digger dreginn fyrir Evrópuráðið og þar tekur við eitt besta atriði myndarinnar: tíu mínútna langur mónólógur þar sem Digger urðar yfir evrópska embættismenn fyrir heigulskap og hræsni. Brechtísk nálgunin er tekin alla leið þegar Digger ávarpar áhorfendur beinlínis. Þótt hann hafi vissulega hraðað hamfarahlýnunni þá séu þeir meðsekir. Hann hafi fengið að komast upp með eyðilegginguna af því fólk vill ekki fórna sínu þægilega lífi til að stöðva hamfarirnar. Sjónum er ekki lengur beint að lélegri ádeilu heldur almenningi sem hefur setið aðgerðalaus hjá. Cruise er hvað bestur í löngum mónólóg Diggers um miðbik myndar. Eitt lykilþema myndarinnar er það hvernig sögur eru sagðar ýmist til að brengla sannleikann eða henda reiður á honum. Digger talar stöðugt um að sannleikurinn skipti ekki máli heldur einungis hver segir söguna hverju sinni. Hann snýr stöðugt upp á sannleikann sér í hag, ritskoðar samfélagsmiðla til að dempa högg hamfaranna, lýgur að undirmanni sínum til að fá sínu fram og blekkir meira að segja sjálfan sig að lokum. Við blekkjum okkur sjálf með listinni með því að telja okkur trú um að hún geti einhverju breytt þegar hún í raun afvegaleiðir og kemur í veg fyrir raunverulegar aðgerðir. Þessar vangaveltur eru skemmtilegar en drukkna samt sem áður í leikritinu sem heldur áfram á sömu nótum með tilheyrandi kúkabröndurum, ofleik og skopstælingum á þeim sem ráða. Iñárritu er of upptekinn af því hvað honum finnst leikritið sniðugt, sem það er ekki, til að kafa dýpra ofan í efnið og hjakkar í staðinn áfram í sama farinu. Riz Ahmed er frábær í hlutverki vísindamannsins Dr. Ganesh. Rammasagan er fyrsta frásagnarbrella Iñárritu en hann er með fleiri tromp á hendi. Næsta afhjúpun kemur á síðasta hálftímanum þegar framleiðandi leikritsins, Kenny (Plemons), reynist vera systursonur Diggers og jafnframt persóna í leikritinu. Fjölskyldan sem steypti heiminum í glötun er enn valdamikil og hagnast á því að selja áhorfendum sögu af eigin hrakförum. Kenny reynir að miðla málum milli aðalleikarans sem finnst leikritið vera ódýrt og ótrúverðugt og leikstjórans sem fullvissar hann um að leikritið sé fyndið og nauðsynlegt til að gefa fólki kaþarsis og tækifæri til að hlæja að þeim sem komu jörðinni á þennan stað. Kenny segir báða aðila hafa á réttu að standa, leikritið sé í senn fáránlegt og sannsögulegt, mikilvægi þess felist í því að gefa almenningi griðastað í listinni. Um leið er tilvist framleiðandans sjálfsvísun (e. metafiction) í kvikmyndina Digger sem er auðvitað framleidd af stórfyrirtækjum sem græða á því að fjármagna ádeilur um þá valdamiklu. Jesse Plemons er í hrópandi ósamræmi við flestalla aðra leikara myndarinnar og líka einn besti hluti hennar. Síðasta afhjúpun Iñárritu kemur svo í lokin þegar leikritinu lýkur og áhorfendur fagna eins og brjálæðingar yfir örlögum skaðvaldanna áður en það ómar varúðarpíp. Þau setja á sig gasgrímur og ganga út úr leikhúsinu í heim sem búið er að sökkva á kaf. Þó að listin veiti okkur fró þá býr hún ekki yfir krafti til að breyta heiminum. Kreditlistinn rúllar meðan áhorfendur horfa á heiminn sem hefur hrunið þar til varúðarpípið ómar aftur: Eftir að hafa horft á bitlausa satíru göngum við út í okkar eigin heim sem stefnir í sömu átt. Iñárritu reynir að halda mörgum boltum á lofti en nær ekki að grípa þá, hann er of upptekinn af sögu Digger til að koma henni heim og saman við það sem er að gerast í umheimi kvikmyndarinnar. Rammasagan er afskipt, hliðarfléttan um dótturina nær engum slagkrafti og áhorfendur fá ekki tækifæri til að tengjast persónunum sem eru allar tvívíðar. Þrátt fyrir frásagnarloftfimleika er lokaniðurstaðan á endanum frekar grunnhyggin og skilur ekki mikið eftir sig - babúskan er hol að innan. Niðurstaða Digger tekst á við áleitin mál samtímans og gerir í því að ögra áhorfendum og taka sénsa. Vangaveltur um skáldskap sem er bæði bitlaust byltingartól og mannfólki nauðsynlegur til að takast á við hörmungar eru snjallar en Iñárritu er svo upptekinn af brechtísku konseptinu að hann nær ekki að kafa neitt dýpra ofan í þær. Það er miður að myndin gangi ekki upp sem heild því fjölmargir færir listamenn koma að verkinu. Gervi og búningar eru góð, leikmyndin er framúrskarandi og tónlistin einstök. Leikararnir eru misjafnir, Tom Cruise og Riz Ahmed komast vel frá sínu meðan John Goodman er heldur leiðinlegur í sínum ofleik og svo hefur hin frábæra Sandra Hüller sennilega aldrei verið slappari. Digger hefur skapað umræðu, fengið harða gagnrýni og dálítið lof en laðað fáa áhorfendur í bíó. Gagnrýnandi hvetur fólk til að skella sér á hana í bíó því þrátt fyrir gallana er hún áhorfsins virði og best í stórum sal með góðu hljóði. Leikritið Fossil Fools er költklassík í heimi Digger og því greinilegt að Iñárritu hefur séð misjafnar viðtökurnar fyrir. Það verður áhugavert að sjá þegar fram líða stundir hvort kvikmyndin verði költklassík eins og leikritið.
Gagnrýni Magnúsar Jochums Bíó og sjónvarp Hollywood Tengdar fréttir Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Klukkan er að ganga eitt og allir farnir að sofa en þú situr við tölvuskjáinn og stráfellir óða uppvakninga. Ein mistök skilja milli lífs og dauða, hjartað þitt slær á milljón en þú getur ekki hætt. Nýjasta aðlögun tölvuleiksins Resident Evil að stóra skjánum fangar þessar tilfinningar með því að senda áhorfendur í blóðuga, taugatrekkjandi og meinfyndna rússíbanareið um veirusýkta borg. 2. október 2026 07:01 Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Öflugur ungur leikhópur og urmull slagara Sálarinnar hans Jóns míns gera söngvamyndina Hvar er draumurinn? að fínustu skemmtun. Kvikmyndin er gerð án styrkja af nýgræðingum í faginu og ástríðan skín í gegn. Ákveðinn byrjendabragur er á vanþróuðu handritinu og hroðvirknislegri hljóðvinnslu sem getur gengið fram af áhorfendum í sumum tónlistarsenum. 9. september 2026 07:01 Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Köngulóarmaðurinn tekst á við einmanaleika, hormónaójafnvægi og dularfullt illmenni í nýjustu kvikmyndinni um kappann. Framan af er um að ræða skemmtilega ofurhetjumynd með sjarmerandi persónum, góðum hasar og spennandi framvindu. Illa tekst þó að hnýta lausa enda saman, hetjan drukknar í flóði hliðarpersóna og ódýr væmni setur strik í reikninginn. 6. ágúst 2026 07:01 Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Lífið Fleiri fréttir Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira
Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Klukkan er að ganga eitt og allir farnir að sofa en þú situr við tölvuskjáinn og stráfellir óða uppvakninga. Ein mistök skilja milli lífs og dauða, hjartað þitt slær á milljón en þú getur ekki hætt. Nýjasta aðlögun tölvuleiksins Resident Evil að stóra skjánum fangar þessar tilfinningar með því að senda áhorfendur í blóðuga, taugatrekkjandi og meinfyndna rússíbanareið um veirusýkta borg. 2. október 2026 07:01
Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Öflugur ungur leikhópur og urmull slagara Sálarinnar hans Jóns míns gera söngvamyndina Hvar er draumurinn? að fínustu skemmtun. Kvikmyndin er gerð án styrkja af nýgræðingum í faginu og ástríðan skín í gegn. Ákveðinn byrjendabragur er á vanþróuðu handritinu og hroðvirknislegri hljóðvinnslu sem getur gengið fram af áhorfendum í sumum tónlistarsenum. 9. september 2026 07:01
Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Köngulóarmaðurinn tekst á við einmanaleika, hormónaójafnvægi og dularfullt illmenni í nýjustu kvikmyndinni um kappann. Framan af er um að ræða skemmtilega ofurhetjumynd með sjarmerandi persónum, góðum hasar og spennandi framvindu. Illa tekst þó að hnýta lausa enda saman, hetjan drukknar í flóði hliðarpersóna og ódýr væmni setur strik í reikninginn. 6. ágúst 2026 07:01