FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálf­leik

Hjörvar Ólafsson skrifar
Ómar Darri Sigurgeirsson og félagar hjá FH mættu Limoges í kvöld. 
Ómar Darri Sigurgeirsson og félagar hjá FH mættu Limoges í kvöld.  Vísir/Diego

FH laut í lægra haldi fyrir franska liðinu Limoges þegar liðin áttust við í annarri umferð riðlakeppni Evrópudeildar EHF í handbolta karla í Kaplakrika í kvöld. Slæmur fyrri hálfleikur varð FH-liðinu að falli í þessum leik. 

Það kom fljótlega í ljós að Limoges er töluvert sterkara í orðsins fyllstu merkingu. Líkamlegir yfirburðir leikmanna franska liðsins voru umtalsverðir og FH-ingar náðu sjaldan að halda andstæðingnum fyrir framan sig framan af leiknum.

Limoges átti helst til auðvelt með að skapa sér færi í fyrri hálfleik og skora mörk og FH náði hvorki að spila almennilegan varnarleik og þar af leiðandi komst Jón Þórarinn Þorsteinsson, marvkörður Hafnarfjarðarliðsins ekki í gang fyrstu 30 mínútur leiksins.

Staðan var 27-16 þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik. Jón Bjarni Ólafsson var sá eini hjá FH-liðinu sem átti roð í líkamlegan styrk Limoges-manna og Símon Michael Guðjónsson nýtti hornin sín vel í horninu. Aðrir leikmenn voru í erfiðleikum með að koma sér í færi og klára sóknaraðgerðir sínar með jákvæðri niðurstöðu í fyrri hluta leiksins.

Þess ber að geta að burðarásar FH eru margir hverjir ungir að árum en í þessum leik fengu þeir verðmæta lexíu um hvað þeir þurfa að bæta ætli þér sér lengra í alþjóðlegum handbolta. Á báðum endum vallarins vantaði þó nokkuð uppá á köflum og þá sérstaklega þegar kemur að varnarleiknum.

Leikmenn FH lærðu hratt og vel og því ber að hrósa. Vörn heimamanna var mun þéttari í seinni hálfleik og fylgifiskur þess var betri markvarsla hjá Jón Þórarni. Mun meiri áræðni, kraftur og trú var í sóknarleiknum

Þegar upp var staðið munaði 13 mörkum á liðunum og Limoges fór með 33-46 sigur af hólmi. Limoges hefur þar með fullt hús stiga á toppi riðilsins á meðan FH á enn eftir að næla sér í stig. 

Atvik leiksins

Svo sem ekkert eitt atvik sem vert er að taka út fyrir sviga í þessum leik. Bragarbót leikmanna FH í seinni hálfleik var það sem vakti mesta kátínu hjá yfirrituðum. 

Stjörnur og skúrkar

Jón Bjarni var markahæstur hjá FH-liðinu með átta mörk og Símon Michael kom næstur með sex. Jón Þórarinn klukkaði 14 bolta þar af eitt vítakast. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Vojtech Benus og Jakub Uhlir, stóðu sig bara heilt yfir nokkuð vel. Yfir litlu að kvarta hjá tékkneska dómaraparinu.

Stemming og umgjörð

FH-liðið fékk góða hvatningu eins og vanalega. Leikmenn FH voru studdir í mótlæti sínu og þeir endurguldu það með góðri frammistöðu í seinni hálfleik. Flott umgjörð á þessu Evrópukvöld í Kaplakrika. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira