Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar 8. október 2026 08:31 Það hefur verið mikið rætt um heilbrigðiskerfið undanfarið. Álagið er mikið, bið eftir þjónustu getur verið löng og sitt sýnist hverjum um hvað þurfi að gera. Sumir kalla eftir meiri fjármunum og fleira starfsfólki, aðrir vilja sjá meiri nýsköpun, tæknilausnir og breytt skipulag. Líklega þurfum við blöndu af þessu öllu, en til þess að komast áfram skiptir líka máli að geta rætt saman. Það á ekki bara við um heilbrigðiskerfið, en við stöndum einnig frammi fyrir stórum spurningum um menntun, húsnæði, atvinnulíf, gervigreind og hvernig samfélag við viljum byggja hér upp til framtíðar. Um þessi mál verða alltaf ólíkar skoðanir og þannig á það líka að vera. Vandamálið er ekki að við séum ósammála. Það verður fyrst vandamál þegar við hættum að hlusta hvert á annað. Meira sameinar okkur en sundrar Samfélagsumræðan getur stundum gefið manni þá tilfinningu að við séum að færast lengra hvert frá öðru. Umræðan getur oft orðið hörð, fólk skiptist í fylkingar og samfélagsmiðlar gera okkur auðvelt að umgangast helst þá sem sjá heiminn svipuðum augum og við sjálf. En þegar öllu er á botninn hvolft held ég að miklu meira sameini okkur en sundri. Flest viljum við að við getum treyst heilbrigðiskerfinu þegar við eða fólkið okkar veikist, að börnunum okkar líði vel og fái góð tækifæri, að menntakerfið sé gott, samfélagið öruggt og Ísland verði áfram góður staður til að búa á. Við erum einfaldlega ekki alltaf sammála um bestu leiðina þangað og það er allt í lagi. Heilbrigðiskerfið er gott dæmi Heilbrigðiskerfið sýnir þetta vel. Þar eru skiptar skoðanir um skipulag, fjármögnun, hlutverk einkaaðila og hversu mikið eigi að nýta tækni. Markmiðið er þó í grunninn það sama: að fólk fái góða og örugga þjónustu þegar það þarf á henni að halda. Það ætti því að vera hægt að ræða ólíkar leiðir að sama markmiði, því ólíkar skoðanir geta verið uppbyggilegar þegar við virðum sjónarmið hvers annars og ræðum saman af opnum hug. Fleiri heimilislæknar og góður stuðningur við fólkið sem starfar innan kerfisins skipta miklu máli, en á sama tíma eigum við að vera opin fyrir nýjum leiðum. Fjarheilbrigðisþjónusta getur til dæmis aukið aðgengi um land allt, öflugri forvarnir hjálpað fólki að sinna eigin heilsu betur og tæknin getur einfaldað þjónustu og ferla. Þetta þarf ekki að vera annaðhvort eða, því það er vel hægt að styrkja það sem virkar í dag og um leið prófa nýjar leiðir þar sem þær eiga við. Samtalið skiptir máli Ef við ætlum að takast á við stór verkefni eins og framtíð heilbrigðiskerfisins þurfum við vettvang þar sem ólíkar raddir fá að heyrast. Þess vegna finnst mér framtakið “Samtal”, sem fer fram um allt land nú á laugardaginn, 10. október, að frumkvæði Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, sérstaklega áhugavert. Þar kemur fólk með ólíkan bakgrunn og ólíkar skoðanir saman til að ræða eina stóra spurningu: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Tímasetningin hefur líka ákveðna skírskotun, en fyrir fjörutíu árum hittust Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev í Höfða í Reykjavík á fundi sem hafði áhrif langt út fyrir landsteinana. Nú er hugmyndin með framtakinu “Samtal” að skapa rými til að staldra við, hlusta og tala saman. Það er auðvelt að hafa skoðun heima fyrir eða á samfélagsmiðlum, en samfélagið mótast líka af þeim sem gefa sér tíma til að taka þátt, láta sína rödd heyrast og hlusta á aðra. Ungt fólk mun leiða samtalið en allar kynslóðir eru boðnar að borðinu, svo allir 16 ára og eldri geta skráð sig á Talasaman.is og valið hvar þeir vilja mæta. Því fleiri og ólíkari raddir sem heyrast, því verðmætara verður samtalið. Við komumst lengra saman Eitt samtal leysir auðvitað ekki framtíð heilbrigðiskerfisins og við verðum aldrei sammála um öll stóru málin sem samfélagið stendur frammi fyrir, en það er heldur ekki markmiðið. Í jafn litlu samfélagi og Íslandi ætti það hins vegar að vera einn af okkar styrkleikum að geta sest niður, rætt málin og unnið saman þótt við sjáum hlutina ekki alltaf sömu augum. Það má gagnrýna það sem betur má fara og um leið kunna að meta það sem vel er gert. Nýjar hugmyndir þurfa ekki að þýða að allt sem fyrir er sé úrelt og við eigum að geta tekist á um ólíkar hugmyndir án þess að fólkið á bak við þær verði andstæðingar. Þetta á við um heilbrigðiskerfið og í raun samfélagið allt. Þess vegna vona ég að sem flest gefi sér tíma á laugardaginn, taki þátt í viðburðinum “Samtal” og láti rödd sína heyrast. Ekki bara þau sem eru vön að taka þátt í opinberri umræðu, heldur líka fólkið sem gerir það sjaldan, því sjónarmið þeirra skipta ekki síður máli. Annars skiptir það kannski enn meira máli hvað gerist eftir laugardaginn - að samtalið haldi áfram. Framtíð samfélagsins verður ekki byggð á því að við verðum öll sammála. Framtíðin verður byggð á því að fólk taki þátt, segi hvað því finnst, hlusti á aðra og sé tilbúið að leita leiða áfram saman. Heilbrigð þjóð þarf því ekki bara gott heilbrigðiskerfi. Hún þarf líka gott samtal. Höfundur er læknir og frumkvöðull - stofnandi Fjarlækninga og Lifeline Health. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Victor Guðmundsson Mest lesið Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar