Skoðun

Sam­ráð sem breytir

Karólína Helga Símonardóttir skrifar

Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025 - 2040 hefur nú verið formlega samþykkt. Aðalskipulag er eitt mikilvægasta verkfæri sveitarfélaga. Það setur okkur ramma um hvar fólk býr, hvar börnin okkar ganga í skóla, hvernig við ferðumst, hvar atvinnulíf fær að þróast og hvernig við verndum náttúru og útivistarsvæði.

Þess vegna skiptir máli hvernig við vinnum að slíku skipulagi

Vinna við aðalskipulag Hafnarfjarðar hófst snemma á síðasta kjörtímabili og öll sú vinna var að mestu leyti unnin í þverpólitískri og góðri samvinnu allra kjörinna fulltrúa í skipulags- og byggingaráði, sem og í bæjarstjórn. Eins var virkt og gott samráð við íbúa snemma í ferlinu, afar mikilvægur hluti af vinnu við aðalskipulagið. Fjölmargir íbúar og hagsmunaaðilar komu að vinnunni og athugasemdir bárust við auglýsta tillögu.

Samráð á að skipta máli

Gott dæmi um að samráð og þátttaka íbúa í vinnu við aðalskipulag sveitarfélagsins skiptir máli kemur mjög skýrt fram við breytingu á tillögum í vinnsluferli, eins og raungerðist með endanlegri útfærslu á uppbyggingu í Vatnshlíð. Þar var tekið tillit til athugasemda íbúa, en sjá má að í upphaflegri tillögu var gert ráð fyrir 64,6 hektara svæði og allt að 1.400 íbúðum. Eftir athugasemdir og samtal var tillagan endurskoðuð. Svæðið var minnkað í 39,1 hektara og íbúum fækkað í um 1.100. Byggðin verður jafnframt lægri þegar nær dregur Hvaleyrarvatni og mikilvægar tengingar við græn svæði verða skýrari.

Bætt lífsgæði á að vera leiðarstef okkar allra

Við þurfum á uppbyggingu að halda. Íbúum er að fjölga og ákveðnum þörfum þarf að svara. Hafnarfjörður þarf fleiri íbúðir, fjölbreytt húsnæði og öflug hverfi þar sem fólk getur búið, starfað og alið upp börn. En uppbygging má aldrei vera markmið í sjálfu sér. Hún þarf að fylgja innviðum, skólum, leikskólum, samgöngum, grænum svæðum og góðum almenningsrýmum. Og þá mikilvægu ábyrgð þurfa allir kjörnir fulltrúar ávallt að hafa að sínu leiðarstefi, í öllu okkar skipulagi: Að bæta lífsgæði bæjarbúa.

Við eigum líka að þora að hugsa til lengri tíma. Hafnarfjörður á að vera sveitarfélag þar sem miðbærinn lifnar við, atvinnulíf fær svigrúm til að vaxa, almenningssamgöngur verða raunhæfur valkostur og náttúran fær að njóta sín.

Aðalskipulagið er því ekki bara kort af Hafnarfirði. Það er framtíðarsýn.

Því Hafnarfjörður verður ekki betri með því að skipuleggja fyrir Hafnfirðinga. Hann verður betri með því að skipuleggja með Hafnfirðingum.

Höfundur er formaður Skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar og oddviti Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

23?

Björg Magnúsdóttir skrifar

Sjá meira


×