Skoðun

Bær í vexti - nýtt aðal­skipu­lag Hafnar­fjarðar

Stefán Már Gunnlaugsson skrifar

Nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar var samþykkt á síðasta bæjarstjórnarfundi og gildir til ársins 2040. Markmið þess er að Hafnarfjörður sé eftirsóknarverður staður til að búa og starfa í. Skipulagið byggir á tæplega fjögurra ára vinnu þar sem lögð var áhersla á gott samráð við íbúa og aðra hagaðila.

Hvað er aðalskipulag?

Aðalskipulagi er ætlað að veita heildstæða sýn á framtíðarþróun sveitarfélagsins hvað varðar áform sveitarfélagsins um landnotkun, umhverfisvernd og þróun byggðar. Þar koma fram megin leikreglur um hvað er leyfilegt á hverju svæði, t.d. íbúðabyggð, atvinnusvæði, græn og opin svæði, auk viðmiða um hámarksbyggingarmagn og hvar vegir, stígar, gönguleiðir og önnur samgöngumannvirki skuli liggja. Gildistími aðalskipulags er almennt um 15 ár. Endurskoðun þess fer fram reglulega og gefur tækifæri til að uppfæra stefnu sveitarfélagsins miðað við þróun um húsnæðisþörf, umferð, almenningssamgöngur o.fl.

Helstu áherslur

Við gerð aðalskipulagsins var lögð áhersla á að einfalda umgjörð sem stuðlar að sjálfbæru og fjölbreyttu samfélagi með öflugri þjónustu, þar sem fólkið nýtur lífsins í fallegri byggð milli hrauns og hafs.

Helstu nýmæli

  • Nýtt íbúðasvæði við Hamranes
  • Samgöngumiðstöð á Tjarnarvöllum
  • Borgarlína og Borgarlínustöðvar.
  • Möguleika á jarðgöngum undir Setberg
  • Slökkvistöð á Völlunum
  • Nýr golfvöllur í Snókalöndum
  • Nýr kirkjugarður fyrir duftker í Vatnshlíð
  • Samþætting miðbæjar við Flensborgar- og Suðurhöfn
  • Leiðigarðar sem byggja á áhættumati Veðurstofunnar vegna hraunvár
  • Rafmagnslínur meðfram byggð fara í jörðu

Íbúaþróun og húsnæði

Gert er ráð fyrir að íbúar Hafnarfjarðar verði á bilinu 38.000–45.000 árið 2040, eða að fjölgun íbúa verði um 450-900 á ári. Til að mæta þessu gerir aðalskipulagið ráð fyrir að fullnýta byggingarsvæði, bæði ný svæði í Vatnshlíð og Hamranesi og umbreytingu atvinnuhúsalóða í íbúðarsvæði á Hraun-vestur og við Óseyrar- og Hvaleyrarbraut.

Það er brýnt að búa í haginn og vinna að markmiðum aðalskipulagsins um fjölbreytt húsnæði sem mætir ólíkum þörfum íbúa á mismunandi aldri, ólíkum fjölskyldugerðum og með mismunandi tekjur. Því er nauðsynlegt að hefja sem fyrst vinnu við breytingu á vaxtarmörkum höfuðborgarsvæðisins nú þegar aðalskipulagið liggur fyrir.

Samráð og athugasemdir

Frá upphafi var lögð áhersla á að kalla eftir sem flestum sjónarmiðum. Vinnslutillaga aðalskipulagsins var auglýst haustið 2025, haldinn var kynningarfundur og vinnustofur sem voru vel sóttar.

Fjölmargar athugasemdir bárust í ferlinu og auglýsta tillögu, sem er þakkarvert. Mikil vinna fór í að fara yfir þau sjónarmið sem þar komu fram. Flestar vörðuðu íbúðabyggð í Vatnshlíð, sem þótti of nálægt Hvaleyrarvatni sem var einnig í eldra aðalskipulagi. Athugasemdunum var mætt með því að færa svæðið fjær vatninu að vestanverðu og fækka um leið íbúðum á svæðinu. Með því móti ætti byggð ekki að sjást frá vatninu og ljós- og hljóðmengun að vera hverfandi.

Það eru ávallt tímamót þegar endurskoðað aðalskipulag er samþykkt. Að baki er mikil vinna þar sem lögð var áhersla á samráð við íbúa. Til marks um það hefur verið þverpólitísk samstaða um vinnuna í skipulags- og byggingarráði, bæði á þessu og síðasta kjörtímabili, nema undir það síðasta þegar Miðflokkurinn sat hjá. Við getum verið stolt af nýju aðalskipulagi sem hefur að leiðarljósi velferð íbúa, sjálfbært og fjölbreytt samfélag á traustum grunni.

Höfundur er varabæjarfulltrúi og fulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í skipulags- og byggingaráði.




Skoðun

Skoðun

Ertu að segja sögu?

Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar

Sjá meira


×