Handbolti

„Það rignir ekkert inn peningum“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar Róbertsson, sonur Róberts aðstoðarþjálfara, verður í lykilhlutverki hjá Valsmönnum í kvöld.
Gunnar Róbertsson, sonur Róberts aðstoðarþjálfara, verður í lykilhlutverki hjá Valsmönnum í kvöld. vísir/Anton

Það er mikil stemning á Hlíðarenda í dag enda Evrópuleikur í handboltanum í kvöld.

Valur tekur þá á móti Tatabanya í Evrópudeildinni. Þetta er þriðji leikur Vals í keppninni.

Valsmenn unnu frábæran sigur á danska liðinu Mors-Thy í fyrstu umferð en töpuðu svo fyrir slóvenska liðinu Grosist Slovan ytra.

Róbert Gunnarsson, aðstoðarþjálfari Vals, er spenntur fyrir kvöldinu enda hafa leikmenn lagt mikið á sig til þess að geta tekið þátt í þessari keppni.

„Án þess að ég ætli að fara eitthvað að væla en þá rignir ekkert inn peningunum í handboltanum. Strákarnir standa straum af kostnaðinum sjálfir með stuðning frá félaginu. Skemmtilegasta fjáröflunin er að fylla húsið, fá frábæran leik og pening í kassann. Þá vinna allir,“ sagði Róbert í Bítinu á Bylgjunni.

Ungverska liðið er búið að tapa fyrstu tveimur leikjum sínum í Evrópudeildinni og Valsmenn sjá því færi á að sækja stig í kvöld.

„Liðið kemur frá litlum bæ fyrir utan Búdapest. Vel staðsett og með flotta höll. Þetta er eitt af stærstu liðum Ungverjalands. Atvinnumannalið með 6-7 landsliðsmenn og unglingalandsliðsmenn,“ segir Róbert en Valur er að sama skapi með afar ungt lið. Ungt en öflugt.

„Það er stór stund fyrir leikmenn og áhorfendur að taka þátt í svona Evrópuverkefnum. Við erum bjartsýnir. Við getum unnið öll þessi lið en þá verðum við líka að eiga góðan leik. Ef við spilum í kvöld eins og gegn Mors þá vinnum við þennan leik. Ég get lofað ykkur því.“

Viðtalið við Róbert má heyra í heild sinni hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×