Innlent

Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Vinningurinn var talsvert stærri en þessi hrúga af peningum.
Vinningurinn var talsvert stærri en þessi hrúga af peningum. Getty

Stálheppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir króna þegar dregið var í Happdrætti Háskólans í dag. Þar sem hún átti bæði trompmiða og einfaldan miða með sama vinningsnúmeri fékk hún sexfalda vinningsupphæð.

Samkvæmt tilkynningu frá HHÍ gaf móðir konunnar henni miðann þegar hún var barn og hún hefur átt hann alla tíð síðan. Hún hafði raunar sagt móður sinni í morgun að hún hefði á tilfinningunni að hún myndi vinna í happdrættinu í dag en óraði ekki fyrir því hve stór vinningurinn yrði.

Tveir aðrir áttu miða með sama númeri og hlutu hvor um sig sjö milljónir króna. Ekki náðist í annan þeirra í síma og fær hann því góðu fréttirnar sendar með smáskilaboðum. Fimm trompmiðaeigendur unnu á bilinu eina til tvær milljónir króna. Einn milljónavinningshafanna hefur ekki skráð símanúmer hjá Happdrættinu og því var hvorki hægt að hringja í hann né senda honum smáskilaboð um vinninginn.

Alls hlutu 3.623 miðaeigendur vinninga í drætti dagsins og skiptu með sér tæplega 210 milljónum króna. Milljónaveltupotturinn féll ekki og hækkar því um 15 milljónir króna, þannig að hann verður 75 milljónir króna í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×