Fótbolti

Þorði ekki á Instagram eftir leikinn

Andri Broddason skrifar
Zlatko Tripic komst í hausinn á leikmönnum Bayern og endaði Olise á að fá sitt fyrsta rauða spjald á ferlinum
Zlatko Tripic komst í hausinn á leikmönnum Bayern og endaði Olise á að fá sitt fyrsta rauða spjald á ferlinum Peter Kneffel/Getty Images

Víkingar frá Noregi áttu stórleik í gær þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við þýska stórveldið Bayern München í Þýskalandi í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Norska liðið beytti ýmsum brögðum til þess að ráða við gestina frá Þýskalandi en liðið fór ekki yfir strikið að þeirra mati.

Eftir leik var Zlatko Tripic, leikmaður Vikings, mikið á milli tannanna á fólki en hann komst í hausinn á Michael Olise, stjörnu Bæjara, seint í leiknum og endaði Olise á að fá rautt spjald. Hann fékk fyrra gula spjaldið fyrir að stöðva skyndisókn með því að brjóta á leikmanni Viking. Eftir brotið ákvað hann svo að kasta boltanum í andlitið á Tripic sem norski fyrirliðinn gerði mikið úr.

Ekki eru allir sáttir við hegðun Tripic í leiknum og hefur athugasemdum rignt inn á samfélagsmiðla hans og þá sérstaklega á Instagram. Í viðtali við NRK eftir leik sagðist hann ekki þora að opna samfélagsmiðilinn eftir leik.

„Sem þekkt persóna þarf maður að lifa með því. Þetta gerist þegar milljónir manna horfa á leikinn. Maður vill aldrei heyra neitt slæmt sagt um fjölskyldu manns, fólk á þó að geta sagt það sem það vill um mig og vonandi les fjölskylda mín ekki það sem er skrifað þar,“ sagði Tripic og virtist ekki láta skoðanir annarra skipta sig máli.

Þjálfari Vikinga, Bjarte Lune Aarsheim, sagði eftir leik að liðið hefði þurft að nota ýmis brögð úr bókinni en að liðið hefði ekki gengið of langt. Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, var sammála og sagði Olise hafa gert mistök.

„Ég vil ekki taka neitt af Viking. Þeir verða að nota verkfærin sem þeir eru með. Við erum vanir þessu og í augnablikum sem þessum getum við ekki látið leikmann vera rekinn af velli. Við bara getum það ekki, það er algjör óþarfi.“


Tengdar fréttir

Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern

Það voru óvænt úrslit í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar til að mynda Noregsmeistarar Viking náðu 3-3 jafntefli við Bayern á heimavelli og Inter tapaði 4-3 á heimavelli gegn Club Brugge.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×