Fótbolti

Náði að hefna sín gegn ítölsku fé­lögunum

Andri Broddason skrifar
Nicolo Tresoldi gat fagnað vel eftir sigurinn í gær og fékk að eiga boltann eftir leik.
Nicolo Tresoldi gat fagnað vel eftir sigurinn í gær og fékk að eiga boltann eftir leik. Marco Luzzani/Getty Images

Nicolo Tresoldi átti sannkallað draumakvöld þegar hann skoraði þrennu fyrir Club Brugge í 4-3 sigri liðsins á Inter Milan í Meistaradeild Evrópu karla í gær. Hann náði því að hefna sín á ítölskum félögum eftir að hafa verið hafnað af þeim þegar hann var yngri.

Tresoldi fæddist á Ítalíu og ólst þar upp. Hann byrjaði ungur að æfa bæði tennis og fótbolta en honum gekk betur í fótbolta og reyndi pabbi hans að koma honum fyrir í unglingaliðum á Ítalíu. Eftir að Tresoldi skoraði 12 mörk í leik gegn strákum sem voru tveim árum eldri en hann var pabbi hans viss um að hann gæti náð langt.

Þeir feðgarnir fóru til ýmissa liða eins og Atalanta, Fiorentina og Juventus en ekkert lið vildi fá hann í liðið. Hann hélt áfram að spila í litla smábænum sínum á Ítalíu þangað til hann flutti til Þýskalands með fjölskyldu sinni. Fjölskyldan flutti vegna þess að móðir hans var að vinna þar sem flugfreyja.

Þar gekk hann í unglingalið Hannover 96 og vann sig þaðan upp í aðalliðið. Eftir að hafa staðið sig vel þar í nokkur ár keypti Club Brugge hann á síðasta tímabili og byrjaði hann strax að raða inn mörkum fyrir félagið.

Liðið heimsótti Inter Milan í gær þar sem Tresoldi gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk gegn Inter og náði því að hefna sín á ítölsku félögunum sem vildu ekki fá hann í liðið. Tresoldi hefur spilað leiki fyrir bæði U19 og U21 landslið Þýskalands en hann hefur enn ekki ákveðið hvort hann vilji spila fyrir þýska eða ítalska landsliðið.

Ef hann heldur áfram góðu gengi sínu með Club Brugge þá er ekki langt í að hann þurfi að ákveða með hvaða landsliði hann vill spila með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×