Innlent

Til­laga um að fækka vara­for­setum felld

Eiður Þór Árnason og Tómas Arnar Þorláksson skrifa
Tillagan skipti þingi ASÍ upp í fylkingar og var farið fram á leynilega atkvæðagreiðslu.
Tillagan skipti þingi ASÍ upp í fylkingar og var farið fram á leynilega atkvæðagreiðslu. Vísir/anton brink

Tillaga um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur í einn var felld á þingi sambandsins nú síðdegis. Alls féllu 60 prósent atkvæða með tillögunni en tvo þriðju atkvæða þurfti til að ná lagabreytingunni í gegn sem jafngildir 66 prósentum.

Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og segir erfitt að sjá að þetta ferli hafi verið sameinandi fyrir hreyfinguna. 

„Núna þurfum við bara að einbeita okkur að þessum málefnum en auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi. Ég held að allir sem halda að hér sé einhvern veginn hægt að sameina fólk með einhverjum hætti undir þessum aðstæðum. Ég er ekki alveg viss um það. En við erum hins vegar hérna með næstum því 300 manns og gríðarlega mikil og öflug málefnavinna sem hefur átt sér stað í dag.“

Halla og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bjóða sig báðar fram til varaforseta ASÍ á morgun. Sólveig hafði gefið út að Efling myndi endurskoða stöðu sína innan ASÍ ef varaforsetum yrði fækkað.

Um er að ræða tillögu sem miðstjórn lagði fram á þingi ASÍ þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Tillagan var felld í laganefnd með 25 atkvæðum á móti 23 en var í kjölfarið lögð fyrir þingið. Farið var fram á að leynileg atkvæðagreiðsla færi fram um tillöguna í stað hefðbundinna handauppréttinga og var fallist á það. Tafði þetta birtingu niðurstöðunnar.

Sagan blóði drifin

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, talaði um það áður en niðurstöðurnar voru kynntar að hann teldi mikilvægt að þingið kæmi út sem ein heild af þinginu og að ekki yrði ráðist í þessa breytingu að þessu sinni.

Finnst þér þessi tillaga um að fækka varaforsetum ekki til þess gerð að lægja öldurnar?

„Nei, alls ekki,“ segir Vilhjálmur. Þegar Efling, eitt stærsta verkalýðsfélag landsins með sína 56 fulltrúa á þingi ASÍ, sé ósátt þá sé eðlilegt að „hlusta og reyna frekar að leysa þetta innbyrðis og skoða hvort við getum fundið lausn á málunum.“

„Ef menn lesa sögu Alþýðusambandsins þessi 110 ár þá er hún blóði drifin ef þannig má að orði komast. Það eru átök í verkalýðshreyfingunni, ég ætla ekki að segja á hverju ári en oft á tíðum, og við þurfum að hafa þroska til þess að vinna okkur út úr þeim vandamálum því að hagsmunirnir eru miklu, miklu meiri og með samstöðunni náum við betri árangri.“

Eftirfarandi viðtöl voru tekin áður en niðurstöðurnar voru kynntar:



Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×