Innlent

Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Lögregla hafði í ýmsu að snúast í dag. Myndin er úr safni.
Lögregla hafði í ýmsu að snúast í dag. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot þar sem bíll var skilinn eftir á vettvangi. Þýfið reyndist vera inni í bílnum, sem var líka stolinn.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, stolið munum og sett þá í bílinn. Síðan skildu þeir bílinn og sömuleiðis munina eftir á vettvangi. Bíllinn reyndist líka vera stolinn.

Tilkynningin barst lögreglumönnum á varðsvæði lögreglustöðvar eitt sem sér um vesturhluta Reykjavíkur og Seltjarnarnes. Þeim barst einnig tilkynning um umferðarslys þar sem ekið var á staur. Bíllinn reyndist óökuhæfur og var brak og olía á vettvangi. Tveir voru í bílnum og voru þeir fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsi.

Lögreglan hafði þá afskipti af gesti á veitingastað sem hafði borðað og drukkið en neitaði síðan að borga fyrir veitingarnar. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Veðrið setti einnig sinn svip á störf lögreglunnar og þurftu lögreglumenn á varðsvæði tvö, sem sér um Hafnarfjörð og Garðabæ, að elta uppi trampólín sem var á ferðinni niður götu. Haft var uppi á trampólíninu og það tryggt.

Einn var handtekinn af lögreglunni eftir að hafa verið stöðvaður grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Lögreglumennirnir komu auga á meint fíkniefni í bifreiðinni. Var viðkomandi því handtekinn grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×