Enski boltinn

Sjáðu lygi­legt mark Brighton frá miðju

Sindri Sverrisson skrifar
Diego Gomez brosti út að eyrum eftir markið ótrúlega í dag.
Diego Gomez brosti út að eyrum eftir markið ótrúlega í dag. Getty/Richard Heathcote

Diego Gómez skoraði lygilegt mark fyrir Brighton í fyrri hálfleik gegn Crystal Palace í dag, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Markið skoraði Gómez frá miðlínunni, eða af 51 metra færi, þegar hann kom Brighton í 2-0 á 7. mínútu. Hann nýtti sér það að markvörðurinn Walter Benítez var kominn aðeins frá marki sínu og skoraði með frábæru skoti sem sjá má hér að neðan.

Klippa: Mark Brighton frá miðju

Ekki hefur verið skorað mark af lengra færi síðan Wayne Rooney skoraði fyrir Everton gegn West Ham í nóvember árið 2017 af 58 metra færi.

Brighton komst í 3-0 á fyrstu tíu mínútunum gegn Palace í dag og var enn 3-0 yfir í hálfleik en textalýsingu frá leiknum má finna hér.

Brighton hefur verið á mikilli siglingu í ensku úrvalsdeildinni en liðið vann Arsenal 3-0 í síðasta leik fyrir landsleikjatörnina og hefur síðan unnið Sunderland 2-0 á útivelli og einnig Kauno Zalgiris 4-0 í Sambandsdeild Evrópu. Vinni liðið í dag verður það með 16 stig, aðeins fimm stigum á eftir toppliði Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×