Innlent

Maður hnoðaður til lífs í Sund­höllinni

Jakob Bjarnar skrifar
Steinþór Einarsson sagði viðbrögð starfsfólks Sundhallarinnar til mikillar fyrirmyndar.
Steinþór Einarsson sagði viðbrögð starfsfólks Sundhallarinnar til mikillar fyrirmyndar. vísir/arnar/vilhelm

Steinþór Einarsson, sviðsstjóri menningar- og íþróttasviðs, segir að þjálfun starfsfólks hafi sannað sig eftir atvik í Sundhöllinni.

Þeim sem voru í Sundhöllinni í gær um klukkan 17 var illa brugðið en þá kom upp atvik. Karlmaður nokkur fékk aðsvif og var hann umsvifalaust færður af starfsfólki á bakkann og fóru endurlífgun af stað.

„Þeir náðu honum til baka,“ segir Steinþór Einarsson í samtali við Vísi. „Við vorum í þessu í gærkvöldi. Sjúkrabíll var kominn eftir fjórar til fimm mínútur og svo fengum við þessar góðu fréttir í kjölfarið. Þetta fór vel.“

Viðstaddir voru reknir uppúr og var Sundhöllinni lokað eftir að atvikið kom upp. Steinþór segir að viðbrögð starfsmanna Sundahallarinnar hafi verið til mikillar fyrirmyndar.

„Allir verkferlar virkuðu og þjálfun starfsmanna að skila sér. Þarna fór betur en á horfðist. Þau stóðu sig öll sem hetjur og voru öll viðbrögð fumlaus. Sjúkraliðarnir höfðu sérstaklega orð á þessu,“ segir Steinþór og er ánægður með sitt fólk og hvernig til tókst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×