Innlent

Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“

Birgir Olgeirsson skrifar
Eftirsjá er af Eggerti Eyjólfssyni hjá HSS, að sögn Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur forstjóra. Hún segir hann hafa styrkt bráðamóttöku stofnunarinnar svo um muni en hann hefur nú ráðið sig til Litla spítalans.
Eftirsjá er af Eggerti Eyjólfssyni hjá HSS, að sögn Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur forstjóra. Hún segir hann hafa styrkt bráðamóttöku stofnunarinnar svo um muni en hann hefur nú ráðið sig til Litla spítalans. Vísir

Eftirsjá er af Eggerti Eyjólfssyni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að hann réð sig til Litla spítalans. Forstjóri stofnunarinnar segir hann hafa unnið frábært starf við að styrkja bráðamóttökuna. Ráðningu yfirlæknis hennar sé að ljúka um mánaðamótin.

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu hans til Litla spítalans á þriðjudag. Eggert, sem hefur verið yfirmaður bráðalækninga hjá HSS, sagðist þá vonast til að starfa áfram hjá stofnuninni í minna starfshlutfalli samhliða nýja starfinu.

„Það er auðvitað eftirsjá að Eggerti og við hefðum gjarnan viljað halda honum áfram sem bráðalækni – hann hefur unnið hreint frábært starf og haldið vel utan um og styrkt bráðamóttökuna svo um munar,“ segir Guðlaug í samtali við Vísi.

„Fólk tekur hins vegar þær ákvarðanir sem það telur bestar fyrir sig og því breytum við ekki. Lífið heldur áfram, við erum lánsöm að búa yfir öflugu starfsfólki og við erum að ljúka ráðningu yfirlæknis bráðamóttöku um mánaðamótin.“

Þurfa sterka bráðamóttöku

Guðlaug segir mikla uppbyggingu eiga sér stað hjá stofnuninni og tækifæri fram undan til að efla sjúkrahúsþjónustuna.

„Staðan hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er ágæt og við stefnum á að svo verði áfram. Við höldum áfram þeirri miklu uppbyggingu sem hér á sér stað. Við höfum nýlega tekið við rekstri Hlévangs með 24 hjúkrunarrýmum og fram undan er opnun nýs 90 rýma hjúkrunarheimilis við Keilisbraut árið 2028, sem stofnunin mun einnig reka. Með fjölgun hjúkrunarrýma skapast gríðarlegt tækifæri til að efla sjúkrahúsþjónustuna hjá okkur enn frekar og þá þurfum við einmitt á sterkri bráðamóttöku að halda.“

Willum sagður á leið í stjórn

Litli spítalinn er einkarekin heilbrigðisþjónusta í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verkefninu ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks. Hún hefur sagt markmiðið að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu, meðal annars með því að sinna fólki með langvinna sjúkdóma á einum stað. Stefnt sé að því að heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur.

Auk Eggerts hefur Hilmar Kjartansson, fyrrverandi yfirlæknir bráðadeildar Landspítalans, komið að verkefninu. Guðrún Ása hefur sagt að Hilmar muni stýra starfseminni.

Vísir greindi einnig frá því á þriðjudag að Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og núverandi forseti ÍSÍ, stefndi samkvæmt heimildum miðilsins í stjórn félagsins. Guðrún Ása var aðstoðarmaður hans í ráðuneytinu frá árinu 2022.

Hvorugt þeirra vildi staðfesta fregnirnar eða tjá sig um málið þegar Vísir leitaði eftir því. Þá sat Guðrún Ása ein í stjórn félagsins og enn átti eftir að skipa nýja stjórn.

Alma varaði við áhrifum á mönnun

Fjármögnun þjónustunnar hefur verið til umræðu. Í viðtali við Vísi 14. október sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra ekkert fjárhagslegt svigrúm hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum. Hvorki hefði verið gerður samningur um slík kaup né gefið vilyrði um greiðsluþátttöku.

Alma sagði smáslys ekki vera meginvanda bráðamóttöku Landspítalans. Hann hefði fyrst og fremst falist í því að ekki væri hægt að útskrifa aldraða sjúklinga í viðeigandi úrræði. Hún vísaði til skýrslna frá 2022 og 2024 þar sem ekki hefði verið mælt með slíku smáslysaúrræði.

Þá þyrfti að gæta þess að ný þjónusta raskaði ekki mönnun opinberu heilbrigðisþjónustunnar. Í annarri skýrslunni hefði sérstaklega verið varað við áhrifum á mönnun bráðalækna annars staðar. Ef ríkið ákvæði að kaupa þjónustuna þyrfti jafnframt að fara fram opið innkaupaferli með útboði eða auglýsingu.

Afstaða ráðherra hefur sætt gagnrýni. Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi hana á Alþingi á þriðjudag. Hún taldi skjóta skökku við að ráðherra afskrifaði verkefnið í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda væri enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×