KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM Sindri Sverrisson skrifar 23. október 2026 09:02 Stelpurnar okkar fögnuðu afar öruggum sigri á Króatíu í undanúrslitum HM-umspilsins en mæta sterku liði Portúgals í úrslitaeinvíginu. vísir/Anton FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, tilkynnti í gær að allar þjóðir sem kæmust inn á HM kvenna í Brasilíu næsta sumar fengju 2,5 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 300 milljóna króna, í undirbúningsfé vegna mótsins.
Í tilkynningu FIFA segir að þessi upphæð verði greidd í desember og um sé að ræða hærri upphæð en áður, sambærilega við HM karla í ár. Ísland er á leið í tveggja leikja úrslitaeinvígi við Portúgal um sæti á heimsmeistaramótinu og verður fyrri leikurinn ytra 1. desember en sá seinni á Laugardalsvelli 5. desember. Þessi sömu lið mættust í umspilseinvígi fyrir síðasta heimsmeistaramót en þá var um stakan leik að ræða og fékk Portúgal þá heimaleik sem liðið vann. Þær þjóðir sem duttu út í riðlakeppninni á HM 2023 fengu 1.560.000 Bandaríkjadali hver í sinn hlut, eða jafnvirði um 190 milljóna króna á gengi dagsins í dag. Hækkunin er því umtalsverð á milli móta. Af þessari lágmarksupphæð beindi FIFA þeim tilmælum til aðildarsambanda að greiða hverjum leikmanni 30.000 dali eða 3,6 milljónir króna á gengi dagsins og verða sambærileg tilmæli að þessu sinni. Fyrsta HM félagsliða í Bandaríkjunum FIFA tilkynnti einnig í dag að fyrsta heimsmeistaramót kvennafélagsliða yrði haldið í Bandaríkjunum en það fer fram dagana 5.-30. janúar árið 2028. Sjö lið hafa þegar unnið sig inn á mótið en það er árangur á árunum 2024-2027 sem skilar liðum þangað. Evrópumeistarar síðustu þriggja ára, Barcelona (tvisvar) og Arsenal, eru því komin inn á mótið sem og Club America frá Mexíkó, Gotham FC frá Bandaríkjunum, Naegohyang frá Norður-Kóreu, Corinthians frá Brasilíu og Wuhan Jiangda frá Kína.
HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Sjá meira