Innlent

Vill efla bóka­söfnin með minni yfir­byggingu

Birgir Olgeirsson skrifar
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri telur viðbrögð við tillögu um mögulega fækkun útibúa Borgarbókasafnsins benda til þess að læsisvandi sé líka meðal fullorðinna.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri telur viðbrögð við tillögu um mögulega fækkun útibúa Borgarbókasafnsins benda til þess að læsisvandi sé líka meðal fullorðinna. Vísir/Lýður Valberg

Markmiðið með úttekt á rekstri Borgarbókasafnsins sé að efla söfnin og kanna hvort draga megi úr yfirbyggingu til að bæta þjónustuna, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún segir látið að því liggja að borgin hyggist loka bókasöfnum í hagræðingarskyni.

„Látið er að því liggja að borgin hyggist loka bókasöfnum í hagræðingarskyni - þegar markmiðið er einmitt að efla söfnin, rýna reksturinn og kanna hvort draga megi úr yfirbyggingu í þágu betri þjónustu við notendur safnanna.“

Fækkun rekstrareininga þarf ekki að þýða fækkun bókasafna. Sameina má stjórnun og stoðþjónustu fleiri safna án þess að starfsstöðvunum sjálfum sé fækkað.

Hildur víkur einnig að gagnrýninni sem tillagan hefur fengið.

„Alltof mörg börn glíma við læsisvanda - en það virðist fullorðna fólkið gera líka, ef marka viðbrögð við tillögu menningarráðs um bókasöfn borgarinnar,“ skrifar hún.

Rithöfundar og borgarfulltrúar gagnrýndu hugmyndina

Tillagan sem Hildur vísar til var lögð fram af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar á fundi menningarráðs 21. október. Þar er meðal annars lagt til að kannað verði hvort veita megi sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri rekstrareiningum eða breyttu fyrirkomulagi, auk samnýtingar við skólabókasöfn.

Afgreiðslu tillögunnar var frestað. Hvorki hefur verið samþykkt að ráðast í úttektina né fækka útibúum.

Hugmyndin hefur mætt harðri andstöðu, meðal annars frá rithöfundum og borgarfulltrúum minnihlutans.

„Það er menningarleg uppgjöf og hnignun að loka bókasafni,“ skrifaði Andri Snær Magnason rithöfundur.

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, rithöfundur og tónlistarmaður, lagði áherslu á að bókasöfn væru sameiginleg rými þar sem allir væru velkomnir án þess að þurfa að kaupa eitthvað.

„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi.“

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í borginni, gagnrýndi sérstaklega að reikna ætti kostnað á hvern gest. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, dró einnig í efa slíka mælikvarða og benti með háðsádeilu á að hlutverk safnanna næði langt út fyrir útlán bóka.

Rúnar segir ætlunina að efla þjónustuna

Rúnar Freyr Gíslason, formaður menningarráðs, hefur einnig brugðist við gagnrýninni. Hann sagði tilgang tillögunnar vera að kanna hvernig bæta mætti þjónustuna og gera söfnin að meira aðdráttarafli fyrir börn og ungmenni.

Sameining rekstrareininga gæti að hans sögn haft góð áhrif á bæði þjónustu og aðgengi. Hann hafnaði því að tillagan gengi út á að minnka þjónustuna.

„Við ætlum að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar.“

Vísar til Helsinki og Osló

Hildur vísar í færslu sinni til samanburðar við bókasöfn í nágrannalöndum. Hún segir Reykjavík og Helsinki hafa nánast sama safnafjölda á íbúa en skráðar heimsóknir séu nærri fjórfalt fleiri í Helsinki. Osló hafi færri safnstöðvar á íbúa en Reykjavík en rúmlega tvöfalt fleiri heimsóknir.

Hildur vill efla hlutverk bókasafnanna sem samfélagshúsa og gera þau að meira aðdráttarafli fyrir börn og ungmenni. Skoða eigi staðsetningu, opnunartíma og þjónustu til að fjölga notendum.Vísir/Vilhelm

„Bókasöfnin eru mörg hver mikilvæg þungamiðja hverfanna. Þau hafa víða þróast í átt að því að vera samfélagshús þar sem fólk kemur saman.“

Hún segir borgina vilja efla þetta hlutverk og gera söfnin að enn öflugra aðdráttarafli fyrir börn og ungmenni.

„En til þess að svo geti orðið þarf að hugsa í lausnum, vanda til verka og nýta hverja krónu með skynsamlegum hætti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×