Sport

„Við ætlum bara að bæta í og gera enn þá betur“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Sölvi á hliðarlínunni í kvöld.
Sölvi á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Anton Brink

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var að vonum ánægður þegar liðið tók á móti Íslandsmeistaratitlinum eftir 2-2 jafntefli gegn Fram í lokaumferð Bestu deildar karla í kvöld.

Víkingar höfðu þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með 2-1 sigri gegn KR þann 19. september.

„Það er svo sem langt síðan við urðum Íslandsmeistarar og við erum búnir að fagna því almennilega. Gott tímabil er búið núna og við getum verið stoltir af því sem við uppskárum á þessu tímabili.“

Í upphafi tímabils greindist Ingvar Jónsson, aðalmarkvörður Víkings, með krabbamein og þurfti að taka sér hlé frá fótbolta. Liðið hefur einnig glímt við meiðsli lykilleikmanna. Sölvi sagði að það sem stæði helst upp úr á tímabilinu væri hvernig liðið hefði brugðist við mótlætinu.

Ingvar hefur verið aðalmarkmaður Víkings síðustu ár, í gegnum bestu tíma í sögu félagsins. Hann mætti í kvöld og tók við skildinum með liðinu.Vísir/Anton Brink

„Gott tímabil og svona mest stoltur af því hvernig við brugðumst við Evrópu og mótlætinu sem við lentum í og álaginu sem við vorum í. Hvernig við einhvern veginn náðum að halda sama standardi og keyra þetta í gegn og uppskárum Íslandsmeistaratitilinn, sem er mjög vel gert.“

Víkingur fagnar Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð og telur Sölvi að liðið hafi lagt ákveðinn grunn fyrir næsta tímabil.

„Fyrst og fremst ætlum við bara að fagna þessu tímabili, fagna í kvöld. Við erum búnir að setja ákveðinn grunn fyrir næsta tímabil. Við ætlum bara að bæta í og gera enn þá betur. Við erum búnir að leggja góðan grunn að komandi tímum,“ sagði Sölvi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×