Innlent

Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins.
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir enga tryggingu fyrir því að gjaldtaka á ferðamannastaði verði eyrnamerkt innviðauppbyggingu. Um sé að ræða skatt á eina sveit.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðreyndin sé sú að gríðarleg innviðaskuld hafi skapast og byggja þurfi innviði. Sanngjarnara væri ef gjöld yrðu tekin víðar en í einu kjördæmi en hafa verði í huga að gjald verði tekið af ferðamönnum en ekki íbúum.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins sem einnig er úr kjördæminu, segir að ferðaþjónustan hafi breytt öllu fyrir svæðið, skapað störf og styrkt þjónustu fyrir heimamenn. Ótækt sé að ríkisstjórnin ákveði að beina spjótum sínum að lífsviðurværi fólks í einni sveit.

„Og kalla það innviðagjald. Og af því að hér talar Ásthildur Lóa um innviðaskuld, sem þau þreytast ekki á að tala um ríkisstjórnarflokkarnir, að í greinargerðinni stendur að gjaldið eigi ekki að endurspegla kostnað og tekjurnar sem þarna á að innheimta eru ekki eyrnamerktar. Þannig að það er engin trygging fyrir því að þessi aukna gjaldtaka sem hér á að fara í, að hún nýtist í að byggja upp einhverja innviði heldur er þetta skattlagning sem á að fara í hítina í þann mikla útgjaldaauka sem þessi ríkisstjórn stendur frammi fyrir.“

Það gangi ekki að eitt sveitarfélag á landinu eigi að bera uppi alla innviðauppbyggingu á landinu. Guðrún sagðist ekki trúa því að Ásthildur Lóa sem oddviti í kjördæminu ætli ekki að beita sér af hörku í málinu.

Hlusta má á umræðuna í heild sinni í spilaranum.

Ásthildur Lóa segir að nú standi yfir samtöl við ráðherra málaflokksins.

„Það er það sem við gerum og við gerum það betur, við gerum það þar frekar en að fara endilega með hrópum og köllum inn í fjölmiðla. Við erum að vinna í þessum málum. Við erum að tala við ráðherrana og við erum að reyna að gera það sem við getum í þessu og þetta er núna í þinglegri meðferð og ég get engu svarað fyrir samráð eða samráðsleysi ráðherranna.“

Innviðaskuldin sé gríðarleg.

„Ástæðan fyrir því að þessi ríkisstjórn er alltaf að tala um innviðaskuld er af því að hún er gríðarleg. Það sést á vegakerfinu okkar, það sést í heilbrigðiskerfinu okkar, það sést í menntakerfinu okkar, það sést alls staðar. Og ef það á að byggja það upp en ekki bara halda áfram að láta grotna niður eins og hefur verið gert í allt of mörg undanfarin ár þá er ekki von á góðu. Við verðum að gera eitthvað til þess að byggja upp og reyna að snúa þessu við og það er það sem þessi ríkisstjórn er að gera,“ sagði Ásthildur Lóa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×