Sport

Dag­skráin í dag: Körfu­bolta­kvöld og Alonso mætir á Anfield

Sindri Sverrisson skrifar
Xabi Alonso er öllum hnútum kunnugur á Anfifeld eftir feril sinn þar sem leikmaður.
Xabi Alonso er öllum hnútum kunnugur á Anfifeld eftir feril sinn þar sem leikmaður. Getty

Það er stórleikur í enska deildabikarnum í fótbolta í kvöld og tveir leikir í Bónus-deild kvenna í körfubolta, í beinni útsendingu á sportrásum Sýnar.

Liverpool og Chelsea mætast í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins á Anfield í kvöld og hefst bein útsending á Sýn Sport Viaplay klukkan 19:50. Xabi Alonso, stjóri Chelsea, var afar vinsæll á Anfield sem leikmaður en er staðráðinn í að koma í veg fyrir gleði Liverpool-manna að þessu sinni.

Klukkan 19:15 eru tveir síðustu leikirnir í fimmtu umferð Bónus-deildar kvenna. Tindastóll og Valur mætast á Sauðárkróki og má búast við hörkuleik á Sýn Sport Ísland. Eina liðið sem enn hefur ekki tapað leik, Grindavík, sækir svo stigalausar Fjölniskonur heim í Grafarvog á Sýn Sport Ísland 2.

Umferðin í Bónus-deildinni verður svo gerð upp í Körfuboltakvöldi um klukkan 21:15 á Sýn Sport Ísland.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×