Enski boltinn

Sverðin slíðruð og lík­legt að Fernandes byrji gegn Chelsea

Sindri Sverrisson skrifar
Michael Carrick og Bruno Fernandes eru sagðir hafa skilið sáttir eftir fund sinn í gær.
Michael Carrick og Bruno Fernandes eru sagðir hafa skilið sáttir eftir fund sinn í gær. Getty/David Davies

Michael Carrick og Bruno Fernandes héldu sáttafund í gær og skildu sáttir að honum loknum en þó er ekki vitað hvort Fernandes baðst þar afsökunar á framferði sínu.

Allt hefur logað stafnanna á milli hjá Manchester United undanfarið eftir skelfilegt gengi liðsins og Fernandes hellti bensíni á bálið með því að gagnrýna leikaðferð United í viðtali eftir 4-1 skellinn gegn Como í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku.

Í kjölfarið tók Carrick fyrirliðann út úr byrjunarliði United og fékk Fernandes ekki að spila eina einustu mínútu gegn Bournemouth um síðustu helgi, í 3-0 tapi á Old Trafford.

Flestir bjuggust við að það yrði síðasti leikur Carricks og að hann yrði rekinn í kjölfarið en hann hefur nú fengið lengri líflínu og mun stýra United gegn Chelsea í hádeginu á laugardaginn. Með sigri í þeim leik yrði United þrátt fyrir allt aðeins þremur stigum á eftir Chelsea sem nú situr í 5. sæti.

Samkvæmt enskum miðlum á borð við Sky Sports hittust Carrick og Fernandes á fundi á æfingasvæði United í gær og áttu þar opið og hreinskilið samtal. Carrick er sagður sáttur og málið úr sögunni þó að ekki sé ljóst hvort Fernandes bað hann afsökunar.

Fundur þeirra tveggja var til viðbótar við fund Carricks með öllu liðinu þar sem menn viðurkenndu að frammistaðan hingað til á tímabilinu hefði verið undir getu og sammæltust um að úr því yrði að bæta hið snarasta, samkvæmt frétt Sky Sports.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×