Enski boltinn

Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir á­tján ára liðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kai Rooney gefur táknrænt merki um mörkin fjögur sem hann skoraði í leiknum og auðvitað fékk hann að eiga boltann líka.
Kai Rooney gefur táknrænt merki um mörkin fjögur sem hann skoraði í leiknum og auðvitað fékk hann að eiga boltann líka. @ManUtd

Kai Rooney skoraði fjögur mörk þegar átján ára lið Manchester United burstaði Burnley 6-0 og hefur augljóslega erft fullt af hæfileikum frá föður sínum Wayne.

Kai er sonur Wayne, markahæsta leikmanns í sögu United, og hann stal senunni þegar lið Darren Fletcher vann sannfærandi sigur í norðurdeild úrvalsdeildar U18 ára liða.

Þessi 16 ára gamli leikmaður kom liðinu yfir á 22. mínútu þegar hann fylgdi eftir og skoraði eftir að skalli Jaume Camacho hafði hafnað í stönginni.

Táningurinn tvöfaldaði markafjölda sinn úr vítaspyrnu skömmu eftir hálfleik, eftir að Dylan Morison, fyrirliði Burnley, hafði brotið á honum.

Hann fullkomnaði þrennuna á 63. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Jay McEvoy og bætti svo við fjórða markinu aðeins þremur mínútum síðar með föstu skoti innan úr vítateignum.

Camacho og varamaðurinn Noah Ajayi bættu við mörkum undir lokin og innsigluðu stórsigurinn, sem kom United í annað sæti deildarinnar með sex sigra í fyrstu átta deildarleikjunum.

Kai Rooney er elstur fjögurra sona Wayne og Coleen Rooney og gekk til liðs við akademíu United í desember 2020, þá 11 ára gamall, og á þessu tímabili lék hann sinn fyrsta leik með U21 árs liðinu.

Nokkrir leikmenn U18 ára liðs United hafa nýlega leikið sinn fyrsta leik með aðalliðinu, þar á meðal Chido Obi, Harry Amass og Shea Lacey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×