Enski boltinn

Liverpool slapp við Manchester City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cody Gakpo fagnar jöfnunarmarki sínu fyrir Liverpool á móti Chelsea á Anfield í kvöld.
Cody Gakpo fagnar jöfnunarmarki sínu fyrir Liverpool á móti Chelsea á Anfield í kvöld. AP/Jon Super

Strax eftir leik Liverpool og Chelsea á Anfield í kvöld var dregið í átta liða úrslit enska deildabikarsins í fótbolta.

Liverpool og Manchester City komust bæði áfram eftir sigur í vítakeppni í kvöld en þau mætast ekki í átta liða úrslitunum.

Manchester City dróst á móti Bradford City en Liverpool á móti Bournemouth. Í hinum leikjunum mætast Crystal Palace og Sunderland annars vegar og í fjórða og síðasta leiknum mætir Fleetwood Town sigurvegaranum úr leik Everton og Newcastle United annað kvöld.

Átta liða úrslitin verða spiluð í vikunni sem hefst 14. desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×