Fótbolti

Viðar Ari skaut Frey og læri­sveina hans út úr bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viðar Ari Jónsson var hetjan í bikarnum í kvöld.
Viðar Ari Jónsson var hetjan í bikarnum í kvöld. HamKam

Viðar Ari Jónsson var hetja Hamarkameratene í norsku bikarkeppninni í kvöld þegar liðið vann Rosenborg á útivelli.

Rosenborg komst í 1-0 í fyrri hálfleik en Ham/Kam skoraði tvö mörk á síðustu tuttugu mínútum leiksins og tryggði sér sæti í sextán liða úrslitunum.

Það fyrra skoraði David Benjamin á 72. mínútu en það síðara Viðar á 84. mínútu. Emil Konradsen Ceïde skoraði mark Rosenborg á 39. mínútu.

Freyr Alexandersson þjálfar Rosenborg og hefur verið að gera góða hluti með liðið í síðustu deildarleikjum en það er áfall að detta út úr bikarnum á heimavelli á móti liði í neðri hluta deildarinnar.

„Við erum einfaldlega ekki líkir sjálfum okkur og það er það sem ég er brjálaður yfir. Maður getur tapað fótboltaleikjum, en að tapa leikjum þar sem maður er ekki líkur sjálfum sér í 40 eða 50 mínútur. Það er í fyrsta sinn sem ég sé það og vonandi í það síðasta,“ sagði Freyr Alexandersson við NRK eftir leik.

Kristall Máni Ingason skoraði fyrra mark Brann í 2-0 útisigri á Grorud en mark Kristals kom á 66. mínútu leiksins. Kristall var í byrjunarliðinu eins og Sævar Atli Magnússon. Eggert Aron Guðmundsson kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×