Viðskipti innlent

Ráðin mann­auðs­stjóri Advania

Atli Ísleifsson skrifar
Ingunn Guðmundsdóttir.
Ingunn Guðmundsdóttir. Advania/Hörður Sveinsson

Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania.

Í tilkynningu segir að hún hafi starfað hjá fyrirtækinu undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf. 

„Ingunn hefur víðtæka reynslu af mannauðsmálum, stjórnun og stefnumótun. Hún er með BA-gráðu í stjórnmála- og kynjafræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í stafrænni þróun og stefnumiðaðri stjórnun frá Hyper Island. 

Áður en Ingunn kom til Advania starfaði hún sem ráðgjafi í stjórnun, stefnumótun og jafnréttismálum, meðal annars fyrir Öldu (áður Empower), Arcur og Capacent,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×