Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. nóvember 2026 17:02 Reikna má með því að formennirnir Kristrún, Sigmundur Davíð og Guðrún verði í essinu sínu á gamlársdag. Enn eitt árið velta skipuleggjendur fyrir sér stóru spurningunni: Hver á að sitja hvar? Vísir/Anton Brink Kryddsíld, hinn árlegi áramótaþáttur Sýnar þar sem formenn stjórnmálaflokkanna á Alþingi gera upp árið, verður á sínum stað á gamlársdag. Þátturinn verður sýndur á Sýn og á Vísi og hefst bein útsending klukkan 14.
Eftir að kvöldfréttir Sýnar voru sagðar í síðasta sinn þann 31. ágúst hafa verið uppi vangaveltur um framtíð Kryddsíldar. Aldrei stóð til að gera nokkra breytingu á þættinum sem hefur verið fastur liður á síðasta degi ársins í sjónvarpi í 36 ár og enn lengur í útvarpi því hann hóf göngu sína á Bylgjunni árið 1986. Rýnt var í sögu Kryddsíldar með nokkrum fastagestum í fyrra. Umsjónarmenn Kryddsíldar í ár verða þær Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttamaður og Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri sem hafa starfað saman um árabil og stýrðu kappræðum fréttastofu Sýnar í maí sem vöktu mikla athygli. Kappræðurnar í heild má sjá að neðan. Telma Tómasson verður að sjálfsögðu á sínum stað sem gestgjafi þáttarins sem verður hátíðlegur að venju með gestum í sal, hljómsveit og miklu stuði. Tilkynnt verður um val fréttastofunnar á manni ársins og eftirminnilegt ár í stjórnmálunum gert upp. Pólitísk umræða er fyrirferðamikil en þó er aldrei langt í húmorinn og því síður tárin sem stundum falla þegar gestir fara á persónulegri nótur. Kryddsíldina frá því í fyrra má sjá að neðan. Fréttastofa Sýnar hlakkar til að kveðja árið 2026 með sem allra flestum landsmönnum, hér heima sem erlendis, klukkan 14 á gamlársdag.
Kryddsíld Bíó og sjónvarp Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Sjá meira