Sorpa stígur fram og biðst afsökunar Eiður Þór Árnason skrifar 30. október 2026 18:16 Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. Villikettir telja að kötturinn Gletta hafi mögulega verið föst í gildunni í tvo daga. Vísir - Villikettir Starfsfólk og stjórnendur Sorpu eru slegin yfir því að köttur hafi lent í gildru á starfssvæði fyrirtækisins með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fót. Gildran hafi verið hluti af meindýravörnum og Sorpa talið að þetta gæti ekki gerst. Búið sé að segja upp verksamningi við meindýraeyði sem bar ábyrgð á gildrunni.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gunnari Dofra Ólafssyni,sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. Samtökin Villikettir greindu frá því að kötturinn Gletta hafi stigið í minkagildru í Gufunesi en nafngreindu ekki Sorpu. Formaður Villikatta segir að meindýraeyðir hafi nú verið kærður til MAST vegna málsins. Gunnar hjá Sorpu segir að starfsmenn hafi komið kettinum Glettu til dýralæknis um leið og hún fannst. Þá muni fyrirtækið greiða allan kostnað við aðhlynningu hennar. Sorpa sé í samstarfi við Villiketti og leigi af þeim felligildrur til að fanga dýr sem villist inn á athafnasvæði Sorpu í Gufunesi. „Til að styðja betur við starfsemi samtakanna mun SORPA greiða aukalega eins árs leigu, 300.000 krónur, til samtakanna,“ segir Gunnar. Biðst afsökunar „Starfsfólk SORPU í Gufunesi og stjórnendur eru slegin yfir því sem gerðist, sérstaklega í ljósi þess að fullyrt var að þær gildrur sem notaðar væru við meindýravarnir hjá SORPU væri þeirrar gerðar að atvik sem þetta ætti ekki að geta gerst. Fyrir hönd SORPU biðst ég afsökunar á að ekki hafi verið gengið nægilega vel úr skugga um þetta,“ bætir Gunnar við. Til standi að fá annan meindýraeyði sem geti sinnt vörnum í móttökumiðstöðinni í Gufunesi í samræmi við stefnu Sorpu um mannúðlega meðferð á dýrum. „Þá verður leiða einnig leitað til að koma betur í veg fyrir að dýr, bæði villt dýr og gæludýr sem búa í nágrenni móttökustöðvarinnar, geti komist inn í hana.“ Mögulega verið föst í tvo daga Ásdís Erla Valdórsdóttir hjá Villiköttum sagði í samtali við Vísi í gær að tilkynning hefði borist um kött á dýraspítalanum Animalíu. Kötturinn hefði verið illa á sig kominn eftir að hafa fest fótinn í minkagildru. „Hún er búin að vera föst í gildrunni í kannski tvo daga þegar hún finnst,“ sagði hún um Glettu. Hún sé villiköttur en búi þó hjá góðu fólki í Gufunesi. „Hún var orðin það köld að það mældist ekki líkamshiti og hún búin að klóra af sér allar klærnar við að reyna að komast úr gildrunni.“ Ásdís sagði ekki víst að Gletta hefði brotnað á beini þegar hún lenti í gildrunni, heldur hefði hún hlotið talsverðan taugaskaða við það að reyna að koma sér úr gildrunni auk þess sem hún hefði losað beinið úr lið í átökunum. Fyrir vikið hafi þurft að taka af henni einn fótinn en hún Gletta gekkst undir aðgerð í gær. Nú er hún í sjúkrafóstri á vegum Villikatta og mun þurfa að vera í búri núna næstu vikur á meðan hún er að jafna sig, að sögn Ásdísar.
Dýr Sorpa Reykjavík Tengdar fréttir „Kisur eru að missa fæturna“ Kisan Gletta er einum fæti fátækari eftir að hafa stigið í minkagildru fyrir utan atvinnuhúsnæði í Gufunesi. Annar köttur lenti í gildru á nákvæmlega sama stað fyrir rúmum tveimur árum, að sögn formanns Villikatta, sem segir að meindýraeyðir hafi nú verið kærður til MAST vegna málsins. 29. október 2026 18:35 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Sorpa stígur fram og biðst afsökunar Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Sjá meira
„Kisur eru að missa fæturna“ Kisan Gletta er einum fæti fátækari eftir að hafa stigið í minkagildru fyrir utan atvinnuhúsnæði í Gufunesi. Annar köttur lenti í gildru á nákvæmlega sama stað fyrir rúmum tveimur árum, að sögn formanns Villikatta, sem segir að meindýraeyðir hafi nú verið kærður til MAST vegna málsins. 29. október 2026 18:35