Íslenski boltinn

Han­sen með gylli­boð frá Akur­eyri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Nikolaj Hansen er á förum frá Víkingi.
Nikolaj Hansen er á förum frá Víkingi. Vísir/Lýður Valberg

Nikolaj Hansen, fráfarandi leikmaður Víkings, er með stórt tilboð frá nýföllnu liði KA á borðinu.

Hansen var tjáð það í vikunni að honum sé heimilt að ræða við önnur félög. Hann hefur verið leikmaður Víkings síðan 2017 en hann hafði fyrir það leikið með Val í eitt tímabil.

Hann var fyrirliði liðsins um tíma en Oliver Ekroth tók við fyrirliðabandinu af honum í stjóratíð Sölva Geirs Ottesen.

Samkvæmt heimildum Vísis mun Hansen nýta heimildina til að ræða við önnur félög og ekki halda kyrru fyrir í Fossvogi. Hann leitar næstu áskorunar.

KA hefur haft samband við Hansen og boðið honum rausnarlegan samning til að leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar en KA féll úr Bestu deildinni í lokaumferð deildarinnar.

KA mun hafa boðið honum duglegan launapakka til að flytja norður og taka slaginn í næst efstu deild.

Breiðablik hefur einnig verið orðað við danska framherjann og þá eru þónokkur félög í Bestu deildinni sögð áhugasöm. FH og Keflavík eru til að mynda sögð með augu á Dananum.

KA leitar að þjálfara en Srdjan Tufegdzic er sagður efstur á lista fyrir norðan. Túfa var leikmaður KA frá 2006 til 2012, aðstoðarþjálfari liðsins frá 2012 til 2015 og aðalþjálfari þess milli 2015 og 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×