Skoðun

Fimm mýtur um vændi

Drífa Snædal skrifar

Umræðan um vændi er oft lituð mýtum og jafnvel er vændi lýst í rómantísku ljósi í bókum og bíómyndum. Hver hefur ekki heyrt klisjuna um elstu atvinnugrein í heimi, eða mætti frekar lýsa vændi sem einni elstu birtingamynd kynbundins ofbeldis? Hér eru nokkrar af algengustu mýtunum – og raunveruleikinn á bak við þær.

Vændi er starf eins og hvert annað. Þessi hugmynd hundsar það valdaójafnvægi sem er innbyggt í vændi. Ólíkt flestum störfum snýst vændi um að selja aðgang að eigin líkama til kynferðislegra athafna í skjóli fátæktar, fíknar eða neyðar. Rannsóknir sýna að meirihluti þeirra sem selja vændi myndu hætta strax ef aðrir valkostir væru í boði. Ef vændi væri sett á mæliker hefðbundinna starfa myndi það ekki standast þær öryggiskröfur sem við gerum til annarra starfa.

Flest í vændi hafa valið það sjálf, af fúsum og frjálsum vilja. Þó að einhver kunni að lýsa vali sínu sem frjálsu sýna rannsóknir að langflest sem eru í vændi eiga sér sögu um fátækt, ofbeldi í æsku, vímuefnavanda eða skort á öðrum tækifærum. Að kalla þetta „frjálst val" lítur framhjá þeim þáttum sem leiðir fólk út í vændi.

Vændiskaupendur eru jaðarsettir einstaklingar með óeðlilegar hvatir. Í reynd kaupa menn úr öllum stéttum samfélagsins aðgang að vændi – feður, eiginmenn, virðulegir borgarar. Rannsóknir á kaupendum sýna að þeir eru iðulega „venjulegir" karlmenn sem hafa tileinkað sér þá hugmynd að það sé eðlilegt og ásættanlegt að kaupa aðgang að líkama kvenna.

Löggjöf gegn vændiskaupum gerir stöðu þeirra sem eru í vændi verri. Þessi fullyrðing er notuð til að réttlæta afglæpavæðingu eða lögleiðingu vændis í heild. Reynslan frá löndum sem hafa innleitt norræna módelið – þar sem kaup eru refsiverð en sala ekki – sýnir að hægt er að draga úr eftirspurn og vændismarkaðnum án þess að refsa þeim sem eru í viðkvæmustu stöðunni. Í úttekt sænskra stjórnvalda árið 2010 kom fram að götuvændi hefði helmingast eftir að bannið tók gildi, ekkert benti til þess að vændi hefði færst í auknum mæli á netið og að áhyggjur af því að staða fólks í vændi myndi versna hefðu ekki gengið eftir. Norska ráðgjafarstofan Vista Analyse komst árið 2014 að þeirri niðurstöðu að bannið hefði dregið úr umfangi vændis og mansals í Noregi og fann engar vísbendingar um aukið ofbeldi gegn fólki í vændi.

Vændi og mansal eru aðskilin fyrirbæri. Eftirspurn eftir vændi skapar þann markað sem mansal þrífst á, og landamærin milli „frjáls" vændis og þvingaðs vændis eru í reynd óljós. Vissulega er lagalegur munur á mansali og vændi, því mansal felur í sér þvingun, blekkingar eða misnotkun á bágri stöðu fólks. Í reynd er ekki hægt að sjá hvort manneskja er í vændi af fúsum og frjálsum vilja, enda eru brotaþolar mansals iðulega þjálfaðir í að segja að svo sé. Samnefnarinn er eftirspurn eftir vændi og krafa um aðgengi. Í alþjóðlegri rannsókn á allt að 150 löndum (Cho, Dreher og Neumayer, 2013) mældist mansal að jafnaði meira í löndum þar sem vændi er löglegt en þar sem það er bannað.

Það skiptir máli að leiðrétta þessar mýtur, því þær hafa bein áhrif á hvernig samfélagið – og löggjafinn – bregst við vændi. Ef við trúum því að vændi sé frjálst starfsval án alvarlegra afleiðinga er hætta á að við horfum fram hjá þörfum brotaþolenda fyrir stuðning, meðferð og raunverulegar útgönguleiðir. Stígamót vinnur daglega með fólki sem ber vitni um að raunveruleikinn er allt annar en mýturnar gefa til kynna.

Öll eru velkomin til Stígamóta, óháð reynslu sinni og því hvernig þau skilgreina hana. Brotaþolar fá ráðgjöf á eigin forsendum. Símanúmer Stígamóta er 562 6868 og netfangið stigamot@stigamot.is.

Höfundur er talskona Stígamóta.




Skoðun

Sjá meira


×