Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson og Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifa 3. nóvember 2026 07:45 Á Íslandi líkt og víða annars staðar í heiminum, lifa íbúar lengur en nokkru sinni fyrr. Þessi þróun er talinn einn mesti árangur á sviði lýðheilsu og félagslegra umbóta síðustu áratuga. Samhliða þessum framförum vaknar umræða um mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri ár þýði einnig betri ár? Til að svara þessari spurningu hefur Evrópunefnd Alþjóðaheilbrigðsmálastofnunarinnar nýlega samþykkt nýja stefnuyfirlýsingu fram til 2030. Þar hverfist leiðarljósið um verkefni undir heitinu Að eldast er að lifa (Ageing is Living: A Strategy for Promoting a Lifetime of Health and Well-being in the WHO European Region 2026–2030). Kjarninn í hugtakinu Að eldast er að lifa (Ageing is Living) er að öldrun sé ekki vandamál sem þarf að leysa heldur eðlilegur og verðmætur hluti lífshlaupsins. Stefnan leggur áherslu á að samfélög þurfi að hætta að líta fyrst og fremst á hærri aldur út frá sjúkdómum, þjónustuþörf eða kostnaði og beina sjónum frekar að þátttöku, virkni, reisn og möguleikum fólks á öllum æviskeiðum. Stefnan byggir á tvíþættri nálgun. Annars vegar er lögð áhersla á að bæta heilsu, velferð og umönnun þeirra sem eru eldri í dag. Hins vegar er fjárfest í forvörnum, heilsueflingu og félagslegum aðstæðum sem stuðla að því að komandi kynslóðir geti elst og þroskast við betri heilsu og meiri lífsgæði. Með öðrum orðum að heilbrigð öldrun er talin hefjast löngu áður en fólk telst komið á efri ár. Meðal helstu áherslna stefnunnar er nálgun út frá lífshlaupi fólks og lýðheilsu, samþættingu og einstaklingsmiðun í heilbrigðis- og félagsþjónusta, eflingu langtímaþjónustu og stuðnings við aðstandendur, þróun aldursvænna samfélaga og aukin nýtingu nýsköpunar og tæknilausna. Jafnframt er lögð rík áhersla á að berjast gegn aldursfordómum og styrkja hlutverk eldra fólks sem virkra þátttakenda í samfélaginu. Fyrir Ísland og önnur Evrópuríki er þessi stefnumörkun mikilvægt innlegg og fordæmi í umræðu og áherslur í samfélaginu og einnig þörf áminning um að lýðfræðilegar breytingar eru ekki aðeins áskorun heldur einnig tækifæri. Samfélög sem fjárfesta í heilsu, þátttöku og sjálfstæði fólks alla ævi eru betur í stakk búin til að takast á við fjölgun í hópi eldri fólks. Boðskapurinn er einfaldur en mikilvægur: Að eldast er ekki lokakafli lífsins heldur eðlilegur hluti lífsins. Að eldast er að lifa minnir okkur á að markmiðið sé ekki aðeins lengra líf, heldur líf sem er virkt, innihaldsríkt og lifað með reisn. Höfundar eru félagsráðgjafar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun