Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar 4. nóvember 2026 10:15 Til forsætisráðherra Fjármálaráðherrann þinn, Daði Már Kristófersson, ber ábyrgð á alvarlegum lögbrotum stjórnar Landsvirkjunar, sem lengi hafa verið á almannavitorði, þar sem hann hefur ekkert aðhafst vegna þessara brota. Hann virðist auk þess sjálfur hafa tekið þátt í slikum lögbrotum, með því að mæta á fundi með stjórninni sem forstjóri LV var ekki boðaður á, eins og skylt er samkvæmt 6. gr. laga um Landsvirkjun. Hér er ekki um smámuni að ræða, því augljóst er að framferði stjórnarinnar hefur orðið þess valdandi að forstjóri fyrirtækisins taldi sig ekki geta unnið undir henni, sem virðist í fyrsta skipti sem alvarlegur ágreiningur af því tagi kom upp í tíð hans. Það sem gerir þetta mun alvarlegra en ella er að umrædd stjórn er handvalin af ráðherranum sjálfum, að því er virðist í einhverjum annarlegum tilgangi sem þó hefur enn farið leynt hver er. Fyrst valdi ráðherrann valnefnd sem síðar valdi tíu af þeim hundruðum sem gefa kost á sér sem stjórnarmenn í ríkisfyrirtækjum, og úr þeim tíu valdi ráðherrann fimm. Um allt ferlið ríkti leynd. Eigendur fyrirtækisins, almenningur, fékk ekki að vita á hvaða forsendum valnefndin valdi, né heldur á hverju ráðherrann byggði sitt val. Daði Már hefur með þessu tekið sér einræðisvald til að ráðskast með þessa eign almennings, og lætur ekki einu sinni svo lítið að útskýra hvað vaki fyrir honum með þessum bolabrögðum. Það bætir svo ekki úr skák að manneskjan sem ráðherrann gerði að stjórnarformanni kom beint úr átta ára setu í stjórn Viðskiptaráðs, sem hefur lengi haft þá stefnu að selja beri Landsvirkjun. Í ljósi þeirrar gríðarlegu spillingar sem hefur verið landlæg á Íslandi í einkavæðingu opinberra eigna alla tíð er þetta blaut tuska í andlit þess almennings sem á fyrirtækið. Allt gerir þetta að verkum að fyllsta ástæða er til að gruna ráðherrann um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu, og þess þá heldur sem hann er þögull sem gröfin um áformin að baki þessum myrkraverkum. Þetta hefur staðið of lengi, og gengið of langt. Það er of seint að veita ráðherranum kurteislega áminningu um að í lýðræðisþjóðfélagi gangi svona framkoma ekki. Þú þarft að reka manninn áður en hann veldur meira tjóni, Kristrún. Höfundur er stærðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Steingrímsson Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar