Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. nóvember 2026 14:13 Daniel Craig og Judi Dench léku á móti hvoru öðru í fimm kvikmyndum um James Bond. Getty/EPA Leikkonan Judi Dench segir Bond-leikarann Daniel Craig hafa verið hvatamann að því að MI6-stjórinn M, sem Dench lék um árabil, yrði drepin. Hún hafi í gegnum árin grátbeðið framleiðendurna um að hleypa M út úr skrifstofunni en þegar loksins varð af því var hún drepin. Hún sé þakklát fyrir hlutverkið en hafi þó ekki grátið þegar henni var tilkynnt um örlög persónunnar, líkt og fjölmiðlar héldu fram.
Hin 91 árs gamla Lafði Judi Dench er leiklistargoðsögn og hefur á sínum tæplega sjötíu ára ferli leikið í um sjötíu kvikmyndum, rúmlega fimmtíu sjónvarpsseríum og heimildarmyndum og á sjöunda tug leikrita. Hún greindi nýverið frá því að hún gæti því miður ekki leikið vegna augnsjúkdóms sem gerir henni erfitt fyrir við að greina andlit. Meðal þekktustu hlutverka Dench eru Elísabet I Bretlandsdrottning í Shakespeare in Love (1998) sem hún hlaut Óskarsverðlaun fyrir, kennarinn Barbara Covett í sálfræðitryllinum Notes on a Scandal (2006) og svo M, yfirmaður leyniþjónustunnar MI6, sem hún lék í átta Bond-myndum, þar af einu sinni í örhlutverki (e. cameo). Dench fer yfir feril sinn í nýútkomnu æviminningunum Is It to Late to Make a Run for It? og segir þar frá því hvernig kom til að karakterinn M var drepinn í kvikmyndinni Skyfall (2012). Framleiðendurnir Michael G. Wilson og Barbara Broccoli hafi tjáð henni um örlög M á fundi. „Mér var boðið á veitingastaðinn The Wolseley af Barböru, Michael og Sam [Mendes], ég held að Daniel Craig hafi ekki verið þarna, og þau lýsti fyrir mér framvindunni og sögðu mér að þau ætluðu að kála mér,“ segir Dench í æviminningunum. Michael G. Wilson og Barbara Broccoli í Hollywood í síðasta mánuði.Getty/Gilbert Flores „Ætli þetta hafi ekki verið mér sjálfri að kenna. Alveg síðan í Goldeney þegar allt tökuliðið fór til Monte Carlo og Sankti Pétursborgar og fékk bara þrjá daga í Watford hafði ég grátbeðið þau um að hleypa mér frá skrifborðinu,“ segir hún og bætir við: „Þau hleyptu mér loksins frá skrifborðinu... og þau skutu mig.“ „Greinilega var hugmyndin um að drepa mig komin frá Daniel. En fyrst þurfti ég að þola þá niðurlægingu að vera rekin af Ralph Fiennes. Fáviti.“ Daniel Craig lék James Bond í fimm myndum yfir fimmtán ára tímabil.Getty Dench fann sig sömuleiðis knúna til að leiðrétta ákveðna rangfærslu um málalokin sem breska pressan hélt fram á sínum tíma. „Það var sagt frá því í blöðunum að ég hefði grátið þegar þau sögðu mér að þau ætluðu að skipta mér út. Auðvitað grét ég ekki. Af hverju ætti ég að gráta eftir tuttugu dýrðleg ár og átta Bond-myndir, sem er, vel á minnst, einni mynd meira en Roger Moore, langlífasti 007 til dagsins í dag, var í.“ Um þessar mundir stendur einmitt yfir val á nýjum James Bond og eru fjórir leikarar sagðir hafa tekið þátt í lokaprufunum í Lundúnum í októberlok: Jack Lowden, Callum Turner, Josh O’Connor og dularfullur ónefndur leikari.
Bíó og sjónvarp James Bond Bretland Hollywood Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Kósýkvöld hjá Vogue: Jólavörur og góð kaup Lífið samstarf Fleiri fréttir Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira