Oddvita Vinstrisins er treyst mest af borgarbúum

Meirihluti Reykvíkinga treystir sjö af ellefu oddvitum í borgarstjórnarkosningunum illa. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu sem mældi traust borgarbúa til oddvitanna. Borgarbúar bera mest traust til Sönnu Magdalenu hjá Vinstrinu. Þar á eftir koma oddvitar Sjálfstæðisflokka, Samfylkingar og Viðreisnar. Oddviti Sósíalistaflokks nýtur rúmlega tuttugu prósent trausts og þrír oddvitar eru með á bilinu tólf til átján prósent. Áberandi lægstir eru oddvitar Flokks fólksins og nýju framboðanna tveggja.

147
05:32

Vinsælt í flokknum Fréttir