Börn fylltu Eldborgarsal

Börn í fjórða bekk í grunnskólum Reykjavíkurborgar fylltu Eldborgarsal í Hörpu í morgun þegar barnamenningarhátíð var sett. VÆB-bræður fluttu þar lag hátíðarinnar við rífandi undirtektir en textinn byggir á svörum barnanna við því hvað felst í orðunum samkennd og samfélag - sem eru einkennisorð barnamenningarhátíðar í ár. Fjölmargir viðburðir verða í boði á söfnum og í öðrum menningarstofnunum borgarinnar í vikunni og ókeypis er inn á þá alla en dagskrána má nálgast á vefsíðu hátíðarinnar.

10
00:55

Vinsælt í flokknum Fréttir