Sextíu prósent Dana álíta Bandaríkin andstæðing

Sextíu prósent Dana álíta Bandaríkin andstæðing, samkvæmt niðurstöðum könnunar Danska ríkisútvarpsins DR, sem skoðaði hvaða hug landsmenn bera til stórveldisins vestanhafs í ljósi yfirlýsinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland. Svo virðist sem útspil Trumps hafi haft mikil áhrif á viðhorf íbúa Danmerkur. Einungis tuttugu prósent líta nú á Bandaríkin sem bandalagsríki og tuttugu prósent eru óviss með afstöðu sína. Utanríkisráðherra þótti miður að heyra niðurstöðurnar.

6
01:19

Vinsælt í flokknum Fréttir