Hvítt í kortunum
Gul veðurviðvörun er í gildi á suðausturlandi með norðaustan hríðarveðri. Tíu til átján metrar á sekúndu, snjókoma og slæmt skyggni. Á miðnætti virkjast gul viðvörun á suðausturlandi. Veðurkortin sýna hægt vaxandi norðaustlæga átt og seint í kvöld er gert ráð fyrir austan tíu til átján metrum á sekúndu og snjókomu.