Nýi Súpermann er tvíkynhneigður DC Comics myndasagnarisinn hefur tilkynnt að nýjasta útgáfan af persónu Súpermann verði tvíkynhneigð. Í næsta hefti myndasögunnar verður ofurhetjan ástsæla sýnd í ástarsambandi við karlmann. Menning 12. október 2021 08:36
Ríkisstjóri Texas bannar að gera bólusetningu að skyldu Greg Abbott, ríkisstjóri Texas í Bandaríkjunum, hefur gefið út tilskipun þess efnis að hér eftir verði öllum félögum, fyrirtækjum og skólum í ríkinu bannað að gera bólusetningu gegn kórónuveirunni að skyldu. Erlent 12. október 2021 06:56
Ánægð með árangurinn í keppni við sjálfan Bond Kvikmyndin Dýrið var sýnd í hátt í 600 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum um helgina og þénaði ríflega eina milljón Bandaríkjadali í gegnum miðasölu á fyrstu þremur dögunum í sýningu. Dýrið, eða Lamb eins og hún heitir á alþjóðavísu, er því tekjuhæsta íslenska kvikmyndin sem sýnd hefur verið í Bandaríkjunum. Bíó og sjónvarp 11. október 2021 12:40
Kampakát Kim kom á óvart í SNL Kim Kardashian West þykir hafa staðið sig merkilega vel í Saturday Night Live um helgina. Hún var fengin til að stýra þættinum og gerði hún meðal annars stólpagrín að sjálfri sér og fjölskyldu sinni. Bíó og sjónvarp 11. október 2021 10:34
Bannað að fjarlægja verju í miðjum klíðum Ólöglegt er nú að fjarlægja smokk án samþykkis samkvæmt nýjum lögum sem ríkisstjóri Kaliforníu í Bandaríkjunum staðfesti í síðustu viku. Kalifornía varð þá fyrsta ríkið til að banna slíkt hátterni Erlent 11. október 2021 09:07
Bandaríkin aðstoði Afgani en viðurkenni ekki yfirráð Talibana Talibanar, sem nú fara með stjórn í Afganistan, segja að fulltrúar bandarískra stjórnvalda hafi samþykkt að veita Afgönum mannúðaraðstoð, að loknum fyrstu viðræðum aðilanna frá því Talibanar tóku völd í landinu í ágúst. Erlent 10. október 2021 23:45
Afhentu FBI ríkisleyndarmál í samloku og tyggjópakka Bandarísk hjón hafa verið handtekin og ákærð vegna gruns um njósnir og sölu á leyndarmálum í tengslum við kjarnakljúfa í kafbátum sem bandarísk yfirvöld hafa yfir að ráða. Hjónin töldu sig hafa átt í samskiptum við fulltrúa ríkisstjórnar erlends ríkis, sem var í raun útsendari bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. Erlent 10. október 2021 19:50
Talibanar ætli ekki að starfa með Bandaríkjamönnum gegn ISIS Talibanar, sem nú fara með völdin í Afganistan, hafa hafnað hugmyndum um að vinna að því í samstarfi við Bandaríkjamenn að kveða í kútinn öfgasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki, ISIS. Samtökin hafa sótt í sig veðrið í landinu frá því Bandaríkjaher yfirgaf það í ágúst og hafa þau lýst yfir ábyrgð á fjölda mannskæðra árása í landinu að undanförnu. Erlent 9. október 2021 20:00
Bandaríkjamenn og Talibanar funda um brottflutning og kvenréttindi Fulltrúar Talibana og Bandaríkjastjórnar funda í dag og á morgun um áframhald á brottflutningi erlendra ríkisborgara og afganskra borgara sem unnu fyrir alþjóðlega herliðið eða stjórnvöld sem Talibanar hröktu fá völdum í ágúst. Erlent 9. október 2021 13:55
Þungunarrofslögin taka aftur gildi í Texas Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum heimilaði í gær Texasríki að halda lögum um þungunarrof til streitu, en tveimur dögum áður hafði alríkisdómari fellt lögin úr gildi. Erlent 9. október 2021 11:37
Þýska lögreglan rannsakar tilfelli Havana-heilkennisins í bandaríska sendiráðinu Lögreglan í Berlín rannsakar nú dularfull tilfelli Havana-heilkennisins svokallaða meðal starfsmanna bandaríska sendiráðsins í borginni. Rannsóknin hófst í ágúst og miðar að því að kanna hvort örbylgjuárás hafi verið gerð á sendiráðsstarfsmenn. Erlent 9. október 2021 09:03
Nýtt lag frá ZÖE í lokaþætti Truth Be Told Í dag gefur tónlistarkonan ZÖE út smáskífuna Blood in the Water. Lagið mun verða áberandi í lokaþætti Apple+ þáttaraðarinnar Truth Be Told sem sem skartar stórstjörnum á við Octaviu Spencer, Kate Hudson, Aaron Paul og Lizzy Caplan. Lokaþátturinn verður frumsýndur á streymisveitunni í dag. Lífið 8. október 2021 17:01
Dýrið frumsýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag Íslenska kvikmyndin Dýrið. eða Lamb eins og hún heitir erlendis, verður sýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag. Aldrei áður hefur íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs. Lífið 8. október 2021 16:31
Lukkudýr Seahawks klóraði stuðningsmann í höfuðið Stuðningsmaður NFL-liðsins Seattle Seahawks komst í full mikið návígi við lukkudýr liðsins á meðan leiknum gegn Los Angeles Rams stóð. Sport 8. október 2021 15:01
Chappelle sakaður um transfóbíu Forsvarsmenn Netflix eru undir þrýstingi um að fjarlægja nýjustu sýningu grínistans Dave Chappelle af streymisveitunni vegna ummæla hans um trans-fólk. Í sýningunni, sem heitir The Closer, lýsir Chappelle yfir stuðningi við rithöfundinn JK Rowling, sem hefur einnig verið sökuð um transfóbíu, og sagði kyn vera staðreynd. Erlent 8. október 2021 14:48
Mælt með að nauðgunarmáli gegn Ronaldo verði vísað frá Dómari í Bandaríkjunum mælir með því að einkamál konu gegn Cristiano Ronaldo vegna nauðgunar verði vísað frá dómi. Lögmaður knattspyrnumannsins fagnar tillögunni. Erlent 8. október 2021 12:05
Óvænt símtal um einangrun á síðustu stundu framlengdi draumafríið á Íslandi Draumafrí bandarísku hjónanna John og Kimberly Moran hér á landi var óvænt framlengt um tvær vikur, eftir að þau greindust með Covid-19 rétt áður en þau áttu að fara í flug heim. Innlent 8. október 2021 10:53
Kínverjar fámálir um fregnir af bandarískum hermönnum í Taívan Kínverjar kölluðu eftir því í morgun eftir því að Bandaríkin slitu hernaðarleg tengsl sín við Taívan. Það er eftir fréttaflutning um að bandarískir landgönguliðar og sérveitarmenn hafi verið staðsettir á Taívan í meira en ár. Erlent 8. október 2021 10:22
Lögregluyfirvöld ekki sannfærð um að Zodiac sé fundinn Alríkislögreglan og lögregluyfirvöld í Kaliforníu telja ólíklegt að Zodiac-morðinginn svokallaði sé fundinn. Hópur sem rannsakað hefur málið greindi frá því fyrr í vikunni að hafa leyst gátuna en lögregla segist ekki sannfærð. Erlent 8. október 2021 08:43
Tólf bandarískir sjóliðar slasaðir eftir árekstur við óþekktan hlut Að minnsta kosti tólf bandarískir sjóliðar eru slasaðir eftir að kjarnorkukafbáturinn USS Connecticut rakst á óútskýrðan hlut í grennd við Suður Kínahaf á laugardaginn var. Erlent 8. október 2021 06:56
Vildi beita ráðuneytinu til að halda völdum eftir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, vildi skipta um starfandi dómsmálaráðherra á síðustu vikum forsetatíðar sinnar og skipa vinveittan mann til að beita ráðuneytinu til snúa niðurstöðum forsetakosninganna sem hann tapaði. Æðstu starfsmenn ráðuneytisins hótuðu því að hætta í massavís og það gerði æðsti lögmaður Hvíta hússins einnig. Erlent 7. október 2021 22:30
Ætla að kenna Kananum að taka kaldhreinsað lýsi Þrjár konur, sem hófu lýsisframleiðslu í Bolungarvík, hafa fengið hæsta styrk Matvælasjóðs til að kenna Bandaríkjamönnum að taka lýsi. Hugmynd þeirra var þó upphaflega sú að framleiða lýsi fyrir gæludýr vestanhafs. Innlent 7. október 2021 21:21
Bjargaði samstarfskonu sinni með skjótum viðbrögðum Lögregluþjónn í Virginíu í Bandaríkjunum er sagður hafa bjargað lífi samstarfskonu sinnar með mjög skjótum viðbrögðum sínum í vikunni. Erlent 7. október 2021 16:47
Fresta efnahagslegum hörmungum til desember Demókratar og Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa komist að samkomulagi um tímabundna hækkun skuldaþaks ríkissjóðs Bandaríkjanna. Mögulegu sögulegu gjaldþroti Bandaríkjanna hefur því verið frestað þar til í desember. Erlent 7. október 2021 15:24
Lögmenn Andrésar fá trúnaðarsamning Giuffre og Epstein afhentan Dómstóll í Bandaríkjunum hefur heimilað að samningur milli Virginiu Giuffre og athafnamannsins Jeffrey Epstein, sem trúnaður hefur ríkt um, sé afhentur lögmönnum Andrésar Bretaprins. Erlent 7. október 2021 10:59
Alríkisdómari frestar gildistöku laga gegn þungunarrofi Alríkisdómarinn Robert L. Pitman hefur staðfest beiðni bandaríska dómsmálaráðuneytisins um að fresta gildistöku afar umdeildrar löggjafar í Texas, sem bannar þungunarrof eftir sjöttu viku meðgöngu. Erlent 7. október 2021 08:01
Eygja samkomulag til að forðast efnahagslegar hörmungar Demókratar og repúblikanar á Bandaríkjaþingi færðust nær samkomulagi um tímabundna hækkun skuldaþaks ríkissjóðs. Bandaríkin gætu lent í sögulegu greiðsluþroti síðar í þessum mánuði sem er talið myndu hafa hörmulegar afleiðingar í för með sér verði þakið ekki hækkað. Erlent 6. október 2021 23:55
Nemandi handtekinn eftir skotárás í skóla í Texas Átján ára nemandi var handtekinn eftir skotárás í skóla í Arlington í Texas í dag. Minnst fjórir eru særðir eftir árásina. Einn er í lífshættu en aðrir virðast hafa sloppið með minniháttar meiðsl. Erlent 6. október 2021 23:01
Skotárás í skóla í Texas Minnst fjórir eru slasaðir eftir skotárás í skóla í Arlington í Texas. Þrír voru fluttir á sjúkrahús, tveir nemendur og einn kennari, en af þeim eru tveir sagðir hafa orðið fyrir skotum. Erlent 6. október 2021 15:48
Skjóta geimfari á loftstein til að æfa jarðvarnir Geimfari á vegum NASA, bandarísku geimvísindastofnunarinnar, verður skotið á loft í næsta mánuði og mun brotlenda á smástirni í 11 milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. Erlent 6. október 2021 10:39