

Besta deild karla
Leikirnir

Uppgjörið: KA - Víkingur 1-0 | Óvæntur sigur heimamanna
KA vann óvæntan 1-0 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Víkings í 15. umferð Bestu deild karla í knattspyrnu í dag. Liðin mætast í bikarúrslitum á Laugardalsvelli í næsta mánuði.

Ómar Ingi: Spurning hvort hann standi við það sem hann lofaði vini sínum
HK gerði 1-1 jafntefli í dag gegn Vestra inn í Kórnum, en jöfnunarmark Vestra kom eftir agaleg mistök fyrirliða heimamanna, Leifs Andra Leifssonar. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, átti erfitt með að sætta sig við úrslit leiksins aðspurður hvort þetta hafi verið sanngjörn niðurstaða.

Uppgjörið: HK - Vestri 1-1 | Mistök fyrirliðans reyndust HK dýr
HK og Vestri gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik 15. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Mistök fyrirliða HK-inga, Leifs Andra Leifssonar, reyndust hans mönnum dýr.

Sýndu Adam áhuga í eitt ár: „Stefnt að þessu síðan ég var lítill krakki“
Ítalska C-deildarliðið Perugia hefur landað Adam Ægi Pálssyni, um ári eftir að hafa fyrst sýnt honum áhuga. Leikmaðurinn er hæstánægður með að hefja atvinnumannaferilinn hjá jafn stóru félagi og Perugia.

Adam búinn að semja við Perugia
Fótboltamaðurinn Adam Ægir Pálsson hefur samið við ítalska C-deildarliðið Perugia. Hann staðfesti þetta í samtali við Vísi.

KR fær ungan framherja frá Húsavík
KR hefur samið við hinn sautján ára gamla Jakob Gunnar Sigurðsson. Hann kemur frá Völsungi þegar tímabilinu er lokið og skrifar undir þriggja ára samning í Vesturbænum.

Hefur áhyggjur af stöðu KR: „Get ekki séð að þetta sé að skána á nokkurn hátt“
KR-ingar eru án sigurs í tæpa tvo mánuði í Bestu-deild karla. Gengi liðsins var til umræðu í síðasta þætti Stúkunnar.

Sjáðu hvernig Fylkir skellti ÍA og FH vann HK
Fylkir lyfti sér af botni Bestu deildar karla með 3-0 sigri á ÍA í gær og FH komst upp í 4. sætið með því að vinna HK, 3-1.

Uppgjörið: FH - HK 3-1 | FH-ingar aftur á sigurbraut
FH vann öruggan 3-1 sigur gegn HK. Staðan var 1-1 í hálfleik en skiptingar Heimis Guðjónssonar, þjálfara FH, skiluðu sínu og FH vann 3-1.

Ómar Ingi: Það er í skoðun að styrkja liðið
Taphrina HK heldur áfram. HK-ingar fóru í Hafnarfjörðinn og töpuðu 3-1 gegn FH. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, var svekktur eftir leik og sagði að hann myndi reyna að styrkja liðið í félagaskiptaglugganum.

Ómar: Þetta var sigur liðsheildarinnar
Ómar Björn Stefánsson kom Fylkismönnum á bragðið í dag þegar hann skoraði fyrsta af þremur mörkum Fylkis í sigri Árbæinga á Skagamönnum í blíðunni. Leikurinn endaði 3-0 og Fylkismenn lyfta sér upp af botni deildarinnar.

Uppgjörið: Fylkir - ÍA 3-0 | Fylkismenn skelltu Skagamönnum niður á jörðina
Fylkir lyfti sér upp af botni Bestu deildar karla með góðum 3-0 sigri á ÍA á heimavelli sínum í Árbænum í kvöld. Skagamönnum var kippt á jörðina og það harkalega en þó að gestirnir hafi þjarmað að Árbæingum gekk ekki að koma boltanum yfir línuna.

Sjáðu mörkin og rauða spjaldið úr leik Vestra og KA
KA vann 2-0 gegn tíu mönnum Vestra í Bestu deild karla í gær. Mörkin tvö og rauða spjaldið má sjá hér fyrir neðan.

Uppgjörið: Vestri - KA 0-2 | Hallgrímur Mar afgreiddi Vestramenn sem bíða enn
KA-menn unnu sinn þriðja sigur í síðustu fjórum deildarleikjum og eru komnir upp í áttunda sæti Bestu deildar karla eftir 2-0 sigur á Vestra á Ísafirði í kvöld.

Sjáðu ískaldan Guðmund Magnússon klára KR og bæði rauðu spjöldin
Framarar unnu 1-0 sigur á KR á Lambhagavellinum í Bestu deild karla í fótbolta í gær.

Uppgjörið og viðtöl: Fram - KR 1-0 | Rúnar með fullt hús gegn KR
Fram vann 1-0 sigur gegn KR á heimavelli. Guðmundur Magnússon skoraði sigurmarkið en þetta var fyrsta tap KR undir stjórn Pálma Rafns Pálmasonar.

„Ég er í sjokki eftir þennan leik“
KR tapaði 1-0 gegn Fram á Lambhagavellinum. Pálmi Rafn Pálmason, þjálfari KR, var verulega ósáttur út í dómgæsluna.

Brynjar Björn tekur við af Olgeiri sem var óvænt sagt upp
Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Fylkis í Bestu deild karla. Hann tekur við af Olgeiri Sigurgeirssyni sem var óvænt sagt upp á dögunum.

Ægir Jarl farinn frá KR til AB í Danmörku
Ægir Jarl Jónasson er farinn frá KR og genginn til liðs við AB í Danmörku þar sem hann mun spila undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar.

„Ég hef engan áhuga á því að vera á bekknum“
Margt bendir til þess að Valsmenn verði með tvo frábæra markverði í sínum herbúðum næstu mánuði. En aðeins einn þeirra getur verið inn á vellinum í einu.

Sveinn Sigurður farinn vestur
Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson er genginn í raðir Vestra sem er í 11. sæti Bestu deildar karla.

„Það vita þetta allir í liðinu að hann er sterkastur þarna“
Viktor Jónsson skoraði fernu í sigri Skagamanna á HK í síðasta leik og er markahæsti leikmaður Bestu deildar karla með tólf mörk í fyrstu þrettán umferðunum. Stúkan ræddi frammistöðu Viktors og fór yfir mörkin hans á tímabilinu.

Jason Daði seldur til Grimsby
Breiðablik hefur selt Jason Daða Svanþórsson til enska D-deildarliðsins Grimbsy Town.

Furða sig á brotthvarfi aðstoðarþjálfarans: „Gjörsamlega galið“
Fylkir mátti þola 4-0 tap er liðið heimsótti Val í Bestu-deild karla síðastliðinn laugardag. Í uppgjörsþættinum Stúkan myndaðist umræða um Olgeir Sigurgeirsson, fyrrverandi aðstoðarþjálfara liðsins.

„Óskiljanlegt að þetta mark hafi fengið að standa“
FH komst yfir á móti KA í 1-1 jafntefli liðanna í Kaplakrika í Bestu deild karla í fótbolta í gær en KA-menn voru mjög ósáttir með að markið hafi fengið að standa. Stúkan ræddi þetta umdeilda mark FH-inga í gær.

Hneykslaðir á fjarveru Jasonar Daða: „Ekki sama lið án hans“
Blikar töpuðu mikilvægum stigum á Ísafirði í Bestu deildinni í fótbolta um helgina þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Vestra. Stúkan ræddi fjarveru Jasonar Daða Svanþórssonar í leiknum.

Sjáðu umdeilt mark FH og vítadóminn sem færði KA stig
FH og KA gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik þrettándu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi.

Ívar Örn: Ótrúleg vinnubrögð dómarans
Ívar Örn Árnason leikmaður KA átti fínan leik í vörn Akureyringa í 1-1 jafntefli gegn FH á Kaplakrikavelli í kvöld. Hann var þó heldur ósáttur með mark FH í leiknum.

Uppgjör: FH - KA 1-1 | Akureyringar stigu lítið skref í átt frá falldraugnum
FH og KA gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu. Stigið er lífsnauðsynlegt fyrir KA sem er nú komið einu stigi fyrir ofan fallsvæðið. FH á sama tíma missti af mikilvægum stigum í Evrópubaráttunni.

Nýta undanþágu til að fá Jason Daða til Englands
Enska D-deildarliðið Grimsby Town nýtir sér undanþágu til að sækja hægri vængmanninn Jason Daða Svanþórsson. Það stefnir í að Mosfellingurinn verði leikmaður félagsins fyrr en seinna.